Áfengistengd heilabilun getur svipt fólk skammtímaminni

Engil­bert Sig­urðs­son geð­lækn­ir seg­ir mik­il­vægt að und­ir­búa starfs­lok með virkni, fé­lags­leg­um tengsl­um og rútínu til að draga úr ein­mana­leika. Heilsa og ætt­ar­saga skipta máli, en auk­in víndrykkja í hópn­um veld­ur áhyggj­um fyr­ir ein­stak­linga og heil­brigðis­kerf­ið.

Áfengistengd heilabilun getur svipt fólk skammtímaminni
Dagleg neysla Víndrykkja er orðin sjálfsagðari í daglegu lífi, segir Engilbert, sem bendir á að áhrif frá fjölmiðlum og markaðssetningu áfengis geri hana að eðlilegum hluta hversdagsins. Mynd: Golli

Engilbert Sigurðsson, geðlæknir og prófessor í geðlæknisfræði, segir áríðandi að fólk undirbúi þriðja æviskeiðið svokallaða, þegar það lætur af störfum vegna aldurs. Hann segir helstu áskoranir vera einmanaleika og vanvirkni og því mikilvægt að fólk finni sér eitthvað að gera, virki tengsl og komi sér upp rútínu, félagslegi þátturinn sé flestum mjög mikilvægur þegar daglegum vinnutengdum samskiptum lýkur. Heilsa og ættarsaga um heilsubrest eru einnig þættir sem eðlilegt er að horfa til þegar starfslok nálgast. Víndrykkja hefur aukist hvað mest hjá þessum aldurshópi, eins og fram kom í leiðara Engilberts í marstölublaði Læknablaðsins og segir hann að henni fylgi vandamál, bæði félagsleg og heilsufarsleg og sé áskorun fyrir heilbrigðiskerfið. 

Áfengisneysla er stöðugt að aukast meðal eldra fólks

Aðspurður segir Engilbert að einmanaleikinn og að finna sér eitthvað að gera frá degi til dags séu aðkallandi þættir sem fólk á þessu skeiði standi gjarnan frammi fyrir. Félagsleg einangrun fylgir oft efri …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár