Eldey föst í veiðarfærum

Síð­ustu daga janú­ar mættu fyrstu súl­urn­ar í Eld­ey. Mild­ur vet­ur virð­ist hafa kall­að þær óvenjusnemma heim. Sum­um þeirra mun bregða í brún þeg­ar þær koma að holu þar sem áð­ur var hreið­ur­skál, enda hreiðr­in nú í hönd­um vís­inda­manna í Sand­gerði. Þær verða þó varla í vand­ræð­um með að byggja sér ný, næg­ur virð­ist efni­við­ur­inn í haf­inu – plast­ið.

Við Ísland verða staðir vart einangraðri en Eldey. Rúmlega 75 metra hár klettadrangur rís úr hafi 15 kílómetrum suðvestan við Reykjanestá þar sem veður, vindar og þung aldan brjóta stanslaust á þessum illkleifa og friðaða útverði landsins. Flatarmálið á hatti eyjarinnar er lítið, um þrír hektarar, svipað pláss og tveir til þrír sumarbústaðir tækju til sín í þéttri sumarhúsabyggð. Hér er þó engin slík byggð enda óvistlegri stað fyrir mannfólk erfitt að finna. Hér er hins vegar paradís súlunnar, öruggt varpsvæði og frábær fiskimið allt í kring. 

„Eldey er stærsta einstaka súlubyggðin á Íslandi, 40% af íslenska stofninum verpir hér. Eyjan er í raun fullsetin, stærð varpstofnsins hefur lítið sem ekkert breyst í áratugi. Maður sér að það komast ekki fleiri hreiður fyrir, hún er alveg þakin,“ segir Sindri Gíslason. Hann er doktor í sjávarlíffræði og forstöðumaður Náttúrustofu Suðvesturlands og er ásamt Sunnu Hrund Sverrisdóttur, sjávarlíffræðingi og samstarfskonu sinni, mættur …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár