Snúningshurð stjórnmála og hagsmuna

Bjarni Bene­dikts­s­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hef­ur störf hjá Sam­tök­um at­vinnu­lífs­ins rúmu ári eft­ir að hann vék úr stjórn­mál­um. Pró­fess­or seg­ir það kall­að „snún­ings­hurð“ þeg­ar stjórn­mála­menn fara í stöð­ur hjá hags­muna­vörð­um eða starfs­menn hags­muna­sam­taka eru ráðn­ir inn í stjórn­kerf­ið. Þetta sé al­gengt á Ís­landi en stjórn­mála­menn seg­ist oft eiga erfitt með að finna vinnu.

Snúningshurð stjórnmála og hagsmuna
Bjarni Benediktsson Formaður Sjálfstæðisflokksins fór úr viðskiptalífinu í ráðherrastól og mun nú sinna hagsmunavörslu fyrir Samtök atvinnulífsins. Mynd: Golli

Bjarni Benediktsson, lögfræðingur, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, forsætisráðherra, fjármálaráðherra og utanríkisráðherra, hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA). Hlutverk hans verður að sinna hagsmunagæslu fyrir samtökin, aðildarfélög þeirra úr sjávarútvegi, orkugeiranum, fjármálakerfinu, iðnaði, verslun og víðar, og þau yfir 2.000 fyrirtæki sem eiga þar aðild. Standa þau að baki um 70% allra launagreiðslna á almennum vinnumarkaði.

Það hefur verið þekkt – en umdeilt – bæði hérlendis og erlendis að stjórnmálamenn fái stöður hjá hagsmunasamtökum að stjórnmálaferli loknum en raunar var Bjarni virkur þátttakandi í viðskiptalífinu fyrstu fimm ár stjórnmálaferils síns þó að umfang þátttöku hans hafi ekki orðið ljóst fyrr en síðar.

Bjarni tekur við nýja starfinu 1. mars næstkomandi en það var 6. janúar í fyrra sem hann tilkynnti skömmu eftir alþingiskosningar að hann hygðist hætta á þingi og segja af sér formennsku í Sjálfstæðisflokknum. Flokkurinn hafði þá hlotið sína verstu kosningu frá upphafi og fékk í fyrsta sinn …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár