Rödd framtíðarinnar – lifði af sjálfsvígstilraun

Aqqalukkuluk Fontain býr yfir rödd sem hann nýtir til þess að miðla upp­lýs­ingum, grein­ingum og hugs­unum til sam­landa sinna. Hann er hin nýja rödd Græn­lands, ungur hug­sjóna­maður sem nýtir sam­fé­lags­miðl­ana til að fá fólk til að hugsa og setja hlut­ina í rétt sam­hengi. Og eftir að hafa lifað af sjálfs­vígstil­raun hjálpar hann öðrum til að lifa af – og tala um til­finn­ingar.

Rödd framtíðarinnar – lifði af sjálfsvígstilraun
Aqqalukkuluk Fontain er kröftug rödd sem miðlar grein­ingum, upp­lýs­ingum og sýn. Mynd: Golli

Á Facebook má sjá vídeó þar sem Aqqalukkuluk ávarpar þann sem horfir, greinir mál og miðlar vit­neskju. Þannig fann blaða­maður hann eftir að hafa horft og hlustað á áhrifa­ríka grein­ingu á því að í umfjöllun fjöl­miðla um Grænland sé verið að end­ur­óma ein­tóna narra­tívu; sagan sé flókn­ari en svo. 

Þegar Aqqalukkuluk, þriggja barna faðir, þjón­ustu­stjóri hjá upp­lýs­inga­tækni­fyr­ir­tæki og ætt­aður frá Sisimiut, er spurður hvað knýi hann til að tjá grein­ingar sínar á Facebook berst í tal færslan sem vakið hafði athygli blaða­manns.

 „Fyrst og fremst finnst mér eins og græn­lenska frá­sögnin sé ekki sögð. Danskir fjöl­miðlar virð­ast ætla að segja hana fyrir okkur og mis­tekst það. Þegar maður horfir á stöð­una og á danska fjöl­miðla, eins og TV2 News og Jyllands-Posten, þá eru þeir með þema sem kall­ast Kampen om Grøn­lands fremtid – bar­áttan um fram­tíð Græn­lands.

En þetta snýst ekki bara um fram­tíð Græn­lands. Því þegar land …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Landið sem enginn á

„Ég var ofbeldisfullur“
ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var ofbeld­is­fullur“

Þegar Embla Krist­jáns­dóttir hóf sam­búð með Niels Thom­as­sen fékk hún að kynn­ast nýrri hlið á mann­inum sem hún elskaði, þar sem stjórn­semi, afbrýði­semi og reiði réðu ríkjum. Hann gekkst við ofbeld­inu, axl­aði ábyrgð og hefur unnið þrot­laust í sjálfum sér síð­asta ára­tug. Nú miðlar hann reynslu sinni og hvetur aðra karl­menn sem glíma við sama vanda að tjá til­finn­ingar sínar og standa ber­skjald­aðir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár