„Ég er ein af þessum konum“

Í þrjú ár hafði Inga Dóra Guð­munds­dótt­ir reynt að eign­ast barn áð­ur en það upp­götv­að­ist að hún var með lykkju. Lykkj­unni hafði ver­ið kom­ið fyr­ir án henn­ar vit­und­ar eða vilja. Upp­götv­un­in var al­var­legt áfall en nú get­ur hún sótt rétt sinn til danska rík­is­ins. Hún seg­ir margt enn óupp­gert, þótt þess­ar þjóð­ir þurfi nú að standa sam­an.

„Ég er ein af þessum konum“
Inga Dóra hefur komið víða við á sínum ferli. Hún var meðal annars bæjarfulltrúi í Nuuk og jafnframt formaður Siumut-flokksins í Nuuk, einnig ritstjóri elsta dagblaðs Grænlands og framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins. Mynd: Golli

Inga Dóra Guðmundsdóttir hefur alla tíð lifað á mörkum ólíkra heima, líkt og verndartáknin á höndum hennar gefa til kynna. Á annarri hendinni er húðflúr sem byggir á íslenskum táknmyndum, en á hinni hefur hún leitað í ræturnar á Grænlandi. Húðflúrin eru jafnstór og sett upp með nákvæmlega sama hætti, hún er með inúíta-tattú. Þau fékk hún sér við það að stíga inn í erfiðan pólitískan slag, vitandi að hún þyrfti á öllum sínum styrk að halda. 

Inga Dóra hefur komið víða við á sínum ferli. Hún var bæjarfulltrúi í Nuuk og jafnframt formaður Siumut-flokksins í Nuuk, einnig ritstjóri elsta dagblaðs Grænlands og framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins. Hún hóf ferilinn við ferðaþjónustu og er í dag framkvæmdastjóri sjálfbærni og samskipta fyrir Air Greenland. Á bak við allt sem hún hefur tekið sér fyrir hendur hafa legið spurningar um það að tilheyra, axla ábyrgð og reyna að skilja samfélag sem hefur …

Kjósa
71
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Magnús Mörður Gígja skrifaði
    Þetta er samið fyrir ykkur kæru Grænlendingar!
    https://music.youtube.com/watch?v=GQ1YmGSBYIg&si=pBByY7Bu3Ma3DAg8
    -1
  • Inga Björk Sveinsdóttir skrifaði
    Dásamleg lýsing og upplifun frjásrar manneskju í landi sem á rétt á að lifa í friði í sínu heimalandi án afskipta frékjudóna.
    4
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Auðvitað var lykkju málið ekkert annað en tilraun til þjóðarmorðs. Og kemur ekki á óvart að Íslensk stjórnvöld hafi ekki staðið með Grænlendingum, því hér eru gildin meira í hinum hefðbundna pýramída, silfrið er efst og allt annað er neðar. Mannréttindi og kvenréttindi eru fallegt helgidaga skraut en skora samt í raun ekki hátt í okkar gildismati. Svo er okkur alveg fyrirmunað að skilja að einhverjir geti hugsað, lifað og tjáð sig eftir öðrum gildum og mati en það sem við höfum.
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Landið sem enginn á

Rödd framtíðarinnar – lifði af sjálfsvígstilraun
ViðtalLandið sem enginn á

Rödd fram­tíð­ar­inn­ar – lifði af sjálfs­vígstilraun

Aqqalukkuluk Fontain býr yf­ir rödd sem hann nýt­ir til þess að miðla upp­lýs­ing­um, grein­ing­um og hugs­un­um til samlanda sinna. Hann er hin nýja rödd Græn­lands, ung­ur hug­sjóna­mað­ur sem nýt­ir sam­fé­lags­miðl­ana til að fá fólk til að hugsa og setja hlut­ina í rétt sam­hengi. Og eft­ir að hafa lif­að af sjálfs­vígstilraun hjálp­ar hann öðr­um til að lifa af – og tala um til­finn­ing­ar.
„Ég var ofbeldisfullur“
ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var of­beld­is­full­ur“

Þeg­ar Embla Kristjáns­dótt­ir hóf sam­búð með Niels Thomassen fékk hún að kynn­ast nýrri hlið á mann­in­um sem hún elsk­aði, þar sem stjórn­semi, af­brýði­semi og reiði réðu ríkj­um. Hann gekkst við of­beld­inu, axl­aði ábyrgð og hef­ur unn­ið þrot­laust í sjálf­um sér síð­asta ára­tug. Nú miðl­ar hann reynslu sinni og hvet­ur aðra karl­menn sem glíma við sama vanda að tjá til­finn­ing­ar sín­ar og standa ber­skjald­að­ir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár