Íslend­ingar bröll­uðu ýmis­legt á árinu. Mynd: Golli

Grundvallarbreytingaárið 2025: Gervigreind, pólitískur lífróður og kæfingartak verðbólgunnar

Árið sem er að líða var við­burða­ríkt, glund­roða­kennt og ein­kennd­ist af menn­ing­ar­stríðum, gervi­greind og póli­tík. Við skoðum áhrif þess og mögu­legar grund­vall­ar­breyt­ingar sem hafa orðið á íslensku þjóð­inni.

Árið sem er að líða hefur verið nokkuð við­burða­ríkt. Þetta er árið sem ysta vinstrið hvarf af póli­tíska svið­inu, Banda­ríkin lýstu yfir nokk­urs konar menn­ing­ar­legu stríði á hendur Evrópu og suður-kóresk popp­menn­ing rudd­ist á sjón­ar­sviðið. Þetta er líka árið sem vaxta­skil­málar bank­anna breytt­ust, árið sem græðg­i­svæð­ing greip um sig hjá bíla­stæða­fyr­ir­tækjum, eins og einn við­mæl­andi orð­aði það, og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sló Íslands­met í mál­þófi. Heim­ildin ræddi við nokkra ein­stak­linga í von um að finna grund­vall­ar­breyt­ingar á íslensku sam­fé­lagi sem urðu á árinu og hvaða þýð­ingu þær gætu haft fyrir fram­tíð­ina.

Er popúlisminn kominn til að vera?

Íslenska stjórn­mála­lands­lagið hefur verið ólíkt því sem Íslend­ingar eiga að venj­ast. Popúl­ismi vakti veru­lega athygli í sam­fé­lag­inu og mátti sjá oft í mál­flutn­ingi innan Mið­flokks­ins. Eins mátti sjá þjóð­ern­is­sinna mót­mæla hælis- og inn­flytj­endum á Aust­ur­velli um mitt sumar. Þar opin­ber­að­ist að auki nýr mál­flutn­ingur þegar ungur maður, annar hluti af hljóm­sveit­artvíeyk­inu ClubDub, end­u­r­óm­aði …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár