Þöglu eigendur atvinnulífsins

Líf­eyr­is­sjóð­irn­ir eru stærstu eig­end­ur skráðra fyr­ir­tækja á Ís­landi en minni hlut­haf­ar með hug á skamm­tíma­gróða eru oft í for­ystu þeirra. Sjóð­irn­ir eiga fyr­ir­tæki sem keppa á sama mark­aði en hag­fræð­ing­um grein­ir á um hvort slíkt hamli sam­keppni. Heim­ild­in kort­legg­ur eign­ar­hald al­menn­ings í gegn­um sjóð­ina í ís­lensk­um fyr­ir­tækj­um.

Almennir borgarar á Íslandi eiga óbeint stóran hlut í stærstu fyrirtækjum landsins í gegnum aðild sína að lífeyrissjóðum landsins.

Hrein eign lífeyrissjóðanna í árslok nam 8.240 milljörðum króna, eða um 179% af vergri landsframleiðslu í fyrra. Það gerir um það bil 21 milljón króna á hvern íbúa landsins. Fá lönd geta stært sig af lífeyrissjóðum af slíkri stærð en það eru helst Danmörk, Kanada, Sviss og Holland sem við getum borið okkur saman við. 

Fyrir vikið eru sjóðirnir stærstu leikendurnir á íslenskum verðbréfamarkaði. Til dæmis má nefna að sjóðirnir eiga um þrjá fjórðu af hlutafé í Högum, félaginu sem rekur matvöruverslanirnar Bónus og Hagkaup, bensínstöðvar Olís, innflutningsfyrirtækið Banana, tískuvöruverslunina Zöru, matarpakkaþjónustuna Eldum rétt og fleiri fyrirtæki.

Sjóðirnir eiga sömuleiðis nær þrjá fjórðu af hlutafé í Festi, öðru félagi sem er öflugt á smásölumarkaði. Það á matvöruverslunina Krónuna, bensínstöðvar N1, raftækjaverslunina Elko, apótek Lyfju og Bakkann vöruhótel meðal annars.

Það …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár