Maður getur ekki tekið neinu sem sjálfsögðum hlut

Linda Þor­valds­dóttir er húsa­mál­ari sem málar mál­verk og steypu­lista­verk í líki dauð­ans hafa vakið athygli á lóð­inni hennar. Undir niðri kraumar þung­lyndi sem hefur fylgt henni alla tíð. Sorgina þekkir hún, eftir að hafa misst systur sína en í fyrra lést barns­faðir hennar þegar hann féll ofan í sprungu í Grinda­vík. Eftir kulnun hóf hún störf hjá Kirkju­görðum Reykja­víkur.

Maður getur ekki tekið neinu sem sjálfsögðum hlut

Linda Þor­valds­dóttir er Reyk­vík­ingur í húð og hár. Hún ólst upp í Selja­hverfi og var í Selja­skóla alla sína hunds- og katt­ar­tíð eins og hún orðar það. Þar bjó hún frá því hún var tveggja ára og þar til hún flutti að heiman 26 ára.

„Maður var alltaf úti að leika sér sem krakki. Ein króna var mjög vin­sæl. Ég átti bara venju­lega æsku. Það var mamma, pabbi og þrjú systk­ini, rað­hús og ekk­ert vesen.“

Ungu stúlk­una dreymdi meðal ann­ars um að verða slökkvi­liðs­kona þegar hún yrði full­orðin eða skurð­læknir. 

Hvað með tón­list­arsmekk­inn á æsku- og ung­lings­ár­unum? Hún fíl­aði fyrst Wham og svo Duran Duran og hún seg­ist vera rokk­ari í sér en að hún hún hlusti á alla tón­list. „Ég er alæta á tón­list en ég er meiri rokk­ari en annað. Ágústa systir var mikil tón­list­ar­mann­eskja, bæði sem ung­lingur og full­orðin, og hún smit­aði okkur …

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár