„Tíminn er á þrotum“

Fjöldi fólks kom saman fyrir utan­rík­is­ráðu­neytið í morgun á mót­mælum sem Félagið Ísland-Palest­ína boð­aði til eftir að að Sam­ein­uðu þjóð­irnar greindu frá því að á næstu 48 klukku­stundum mætti gera ráð fyrir að 14 þús­und börn verði hung­ur­morða á Gaza.

„Tíminn er á þrotum“
Mótmælin í morgun voru fjöl­menn Mynd: Golli

Félagið Ísland-Palest­ína boð­aði til mót­mæla við utan­rík­is­ráðu­neytið þar sem kraf­ist var aðgerða vegna árása Ísrael á Gaza.

Til þeirra var boðað í gær eftir að Sam­ein­uðu þjóð­irnar greindu frá því að á næstu 48 klukku­stundum mætti gera ráð fyrir að 14 þús­und börn verði hung­ur­morða á Gaza; „Tíminn er á þrotum fyrir Palest­ínu­menn á Gaza. Ísrael notar hungur sem vopn og börn eru að deyja vegna nær­ing­ar­skorts,“ segir í til­kynn­ingu vegna mót­mæl­anna.  Þar kom enn­fremur fram að fjórtán þús­und jafn­gildi fjölda óbreyttra borg­ara sem Rúss­landi hafi myrt í Úkraínu á síð­ustu þremur árum. 

„Þetta er þjóð­ar­morð og glæpur gegn mann­kyni. Grófustu brot sem til eru í mann­legu sam­fé­lagi,“ segir í til­kynn­ingu frá félag­inu Ísland-Palest­ína. „Við krefj­umst við­skipta­þving­ana á Ísrael, þátt­töku Íslands í ákæru Suður-Afríku fyrir alþjóða­dóm­stólnum og alþjóð­legrar snið­göngu á Ísrael í íþrótta- og menn­ing­ar­sam­starfi - strax. Ísrael þarf að yfir­gefa Gaza og Vest­ur­bakk­ann fyrir fullt og allt. Alþjóða­sam­fé­lagið þarf að axla ábyrgð á þætti sínum í þjóð­ar­morð­inu, því skjóli sem það hefur veitt Ísrael hjá alþjóða­stofn­unum og aðstoð sem vest­rænar þjóðir hafa veitt Ísraelum með stans­lausum vopna­send­ingum. Tryggja verður óheft og frjálst flæði neyð­ar­að­stoðar og hefja end­ur­bygg­ingu á Gaza þegar í stað.“

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Væri ekki nær að arabar með Múhammeðstrú og nasista blæti væru fluttir í annan dýragarð en Gaza þar sem þeir geta haldið áfram að hata allt mannkynið og myrða eigið fólk og fjölskyldur sínar með hryðjuverkum gegn börnum sínum. Þar fengu þeir einnig mataraðstoð adidas galla og klippingu og vestræna peninga frá Evrópu til að nota fyrir sprengiefni nema það væri bara plat. Þar gætu þeir ráðist á á hvern sem ekki tryði á almættið Allah og hakkað þá niður með göflum og skóflum að smekk. Leyft þeim jafnvel að kaupa bækur sínar áfram s.s. Mein Kampf (vinsælasta ritið á Gaza) og kvikmyndir um alheims samsæri gyðinga. Passa bara að þeir séu með örflögu í rassgatinu svo hægt sé að sjá hvar þetta ágætis gagnlega fólk er staðsett 👍
    -5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár