Pönkarinn sem eyðileggur verk annarra og skapar úr þeim list

The Clock eftir Christian Marclay hefur víða verið kallað mik­il­væg­asta lista­verk 21. ald­ar­innar. Sjálfur hefur hann jafn­vel verið kall­aður einn merkasti lista­maður sam­tím­ans. Hann var þó við það að gefa mynd­list­ina alfarið upp á bát­inn eftir lam­andi blank­heit og henti öllu mynd­list­ar­dót­inu sínu.

Pönkarinn sem eyðileggur verk annarra og skapar úr þeim list

Christian Marclay er sviss­nesk-amer­ískur lista­maður. Árið 2010 var verkið hans, The Clock, frum­sýnt í White Cube-gall­er­í­inu í London. Ári síðar fór Marcley með verkið á Fen­eyjat­ví­ær­ing­inn og vann Gullna­ljónið, aðal­verð­laun hátíð­ar­innar, það árið. The Clock er enn þann dag í dag hans fræg­asta verk og hefur víða verið kallað mik­il­væg­asta lista­verk tutt­ug­ustu og fyrstu ald­ar­innar, og Marcley jafn­vel verið kall­aður einn merkasti lista­maður sam­tím­ans.

Verkið The Clock er sóla­hrings mynd­band sem Marcley og aðstoð­ar­fólk hans voru þrjú ár að klippa saman. Sýning á því hefst alltaf á sama tíma, klukkan fimm síð­degis á stað­ar­tíma. Það sem gerir The Clock sér­stakt er að mynd­bands­brotin sem verkið er sett saman úr vísa stöðugt í eða sýna klukkur, og tím­inn í verk­inu speglar alltaf tím­ann á staðnum sem það er sýnt. Þegar horft er á The Clock fylgist áhorf­and­inn því með tím­anum líða.

Nú hefur Íslend­ingum loks gef­ist kostur á að horfa á …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár