Hver er Jón Óttar? - „Ég hef sjálfur fylgst með fólki mánuðum saman“

Jón Óttar Ólafsson, einn þeirra sem stund­aði njósnir fyrir Björgólf Thor Björg­ólfs­son árið 2012, gaf út glæpa­sögu ári síðar þar sem aðal­sögu­hetjan er lög­reglu­maður sem stundar hler­anir. Jón Óttar vann lengi fyrir Samherja, bæði á Íslandi og í Namibíu, en áður hafi hann verið kærður af sér­stökum sak­sókn­ara, sem hann starf­aði fyrir, vegna gruns um að stela gögnum.

Hver er Jón Óttar? - „Ég hef sjálfur fylgst með fólki mánuðum saman“

Jón Óttar Ólafsson og Guð­mundur Haukur Gunn­ars­son heit­inn stofn­uðu saman fyr­ir­tækið PPP sf. árið 2011 sem stund­aði njósnir fyrir Björgólf Thor Björg­ólfs­son árið 2012, eins og fram kom í frétta­skýr­inga­þætt­inu Kveik á RÚV í gær. Áður höfðu þeir starfað lengi sem lög­reglu­menn.

Jón Óttar komst í sviðs­ljósið árið 2013 þegar hans fyrsta skáld­saga kom út. Þetta var spennu­sagan Hlustað, glæpa­saga þar sem aðal­per­sónan er lög­reglu­maður sem ver miklum tíma við hler­anir. Við kynn­ingu á bók­inni var til­tekið að höf­und­ur­inn væri doktor í afbrota­fræðum frá Cambridge-háskóla, að hann hafi starfað innan lög­regl­unnar, í fjár­fest­inga­banka og hjá Sér­stökum sak­sókn­ara. 

Jón Óttar brá á leik fyrir Séð & heyrt þegar glæpa­sagan Hlustað kom út, eins og Þórarinn Þór­ar­ins­son rifj­aði upp á Facebook í gær.

Bókin …

Kjósa
107
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Það er mjög mikilvægt að Valkyrju-stjórnin ásamt meirihluta alþingis taki faglega á þessu máli, vegna HRUN-mála (2008) var full ástæða til stofna SPILLINGAR-stofnun óháða öllum lögregluembættum landsins, skemmst er frá að segja "það fæddist lítil mús" eftirlitsnefnd 2-3manna um eftirlit með lögreglunni, vonandi er slík stofnun á teikniborðinu, við þurfum ekki að finna upp hjólið í þeim efnum, við getum leitað til Namíbíu og frænda okkar á norðurlöndum.
    9
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Og nú fara stofnanir og kerfi í þvottaferillinn því enginn er að breyta kerfinu svo tekið sé faglega og snarlega á svona vandamálum... sem menn auðvitað vissu löngu áður en kveikur fór að skoða... halló... þeir stofnuðu og skráðu njósnafyrirtæki hjá skattinum eftir eða áður en hafa verið reknir frá sérstökum vitleysing... og enginn spurði neins ? Og engin lög né ferlar virðast taka á vandanum...bara "fyrning". Er alþingin sofandi 24 / 7 / 52 ? Þið gerið ykkur grein fyrir að mörg af lögunum okkar eru nákvæmlega orðrétt eins og erlend lög þegar þau eru þýdd... en kerfið okkar "túlkar" þau öðruvísi. Sem er þveröfugt við það sem Ólafur sérstaki segir. Erlendis eru menn löngu búnir að fatta að bankamannadómarnir voru hvítþvottur meyjarfórna .... því kerfið hélst óbreitt og rannsóknir og dómar hafa lítt breyst... slegið á fingur.. 60 milljóna skilnaðargjöf og ekki gera svona aftur... og vera gripinn. Spit and polish... eru ekki breytingar.

    Og það er ekkert nýtt að slitanefndir í stærri málum kaupi og selji upplýsingar... það er ekkert eftirlit með þeim. Leyndarhóll einhver ??? eða var það Lindarhóll ?

    Og enn í dag þá vitið þið ekki hverjir voru raunverulegir kröfuhafa föllnu bankanna... er það er auðvitað súrrealist staðreynd. Og auðsannanleg.

    Það sem kemur á óvart er að BTB kaupi þjónustu af svona viðvaningum... hann á að vita betur.
    5
  • Gudmundur Einarsson skrifaði
    "hann hafi hætt í lögreglunni því „ég var bara orðinn þreyttur.“ "...rannsókn á efnahagsbrotamálum hafi verið þreytandi..." Auðvitað er þægilegra að slaka á með bófunum en leika löggu.
    8
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Af hverju er Skæruliðadeildin ekki rannsökuð?
    11
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár