Ísland vaknar

Ísland stendur frammi fyrir breyttu lands­lagi í öryggis- og varn­ar­málum. Utan­rík­is­ráð­herra kynnti í vik­unni til­lögu að mótun varn­ar­stefnu sem miðar að því að greina ógnir og varn­ar­búnað. Gagn­rýnendur telja stjórn­völd hafa van­rækt varn­ar­málin og ekki lagað stefn­una að breyttum veru­leika. Pró­fessor sagði fyrir þremur árum: „Þyrnirós svaf í heila öld: Hversu lengi ætlum við að sofa á verð­inum?“

Ísland vaknar

„Klukkan er 8 á Íslandi. For­set­inn okkar segir að við ætlum að eign­ast landið hvort eð er þannig að við getum gert und­an­tekn­ingu.“ Þetta sagði sér­fræð­ingur hjá banda­rískri íþrótt­arás í vik­unni þegar rætt var um að leik­maður ann­ars körfu­boltaliðs­ins sem var að spila hefði ekki drukkið vatn síðan fyrir sól­ar­upp­rás því hann fastaði vegna rama­dan. Ummælin vöktu mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum þar sem margir bentu á að þarna hefði íþrótta­sér­fræð­ing­ur­inn rugl­ast á Íslandi og Græn­landi. Nýaf­staðnar þing­kosn­ingar í Græn­landi fóru fram í skugga þess að Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, sagð­ist nýverið ætla að ná yfir­ráðum yfir Græn­landi „með einum eða öðrum hætti“.

Þetta er raunar ekki í fyrsta skipti sem Trump lýsir yfir vilja til að Banda­ríkin eign­ist Grænland en eftir að hann ræddi þessa hug­mynd opin­ber­lega árið 2019, á hans fyrra kjör­tíma­bili sem for­seti, sagði for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur ein­fald­lega að Grænland væri ekki til sölu. Trump hefur sagt Grænland vera …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ógnir Íslands

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár