Læknir á Landspítalanum lenti aldrei í sama vanda í Noregi

Frá­flæð­is­vandi Land­spít­al­ans náði nýjum hæðum á síð­asta ári, segja flæð­is­stjórar. Elfar Andri Heim­is­son er læknir á Land­spít­al­anum sem hefur unnið bæði hér og í Noregi. Þar þykir alvar­legt ef sjúk­lingur er lengur en fjóra tíma á bráða­mót­töku: „Ég lenti aldrei í því að við gætum ekki útskrifað sjúk­ling.“

Læknir á Landspítalanum lenti aldrei í sama vanda í Noregi
Styttri bið Elfar Andri Heim­is­son sér­náms­læknir hefur starfað á bráða­mót­töku í Noregi þar sem það er talið alvar­legt ef sjúk­lingur er lengur en fjóra tíma á bráða­mót­tök­unni. Mynd: Jóhannes Kr. Kristjánsson

Stærsti kúnna­hópur Land­spít­al­ans eru kyn­slóð­irnar sem eru fæddar á fjórða og fimmta ára­tug síð­ustu aldar. Kyn­slóð­irnar sem koma þar á eftir eru mun stærri og þegar sá hópur kemur af fullum þunga inn í heibrigð­is­kerfið þarf mun fleiri hjúkr­un­ar­rými en nú vantar. 

Í gáma­byggð fyrir aftan Land­spít­al­ann í Fossvogi er flæð­is­deild spít­al­ans, sem reynir á hverjum degi að finna pláss úti í sam­fé­lag­inu fyrir sjúk­linga sem hafa lokið lækn­is­með­ferð og bíða útskriftar. Hildur Helga­dóttir, deild­ar­stjóri flæð­is­deild­ar­innar, segir að stærsti sjúk­linga­hóp­ur­inn séu kyn­slóð­irnar fæddar á fjórða og fimmta ára­tugnum, okkar elsta fólk. „Þetta er heil­mik­ill hópur með alls konar flóknar þarfir. Þegar maður leiðir hug­ann að kyn­slóð­inni sem kemur á eftir, fólki sem er fætt á sjötta og sjö­unda ára­tugnum þá erum við að horfa á rosa­lega stóra árganga þar. Þetta er fólk sem við erum byrjuð að sjá koma hér inn. Þetta er svo stór hópur að við höldum …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Það er ekkert undarlegt við þetta. Helmingaskiptaflokkarnir hafa verið samtaka í að draga,,tennurnar" úr allri velferð og innviðum á Íslandi alla þessa öld og steininn tók úr þegar Vinstri Grænir sem alltaf gáfu sig út fyrir að vera sá flokkur sem væri félagssinnaðastur af öllum tóku sig til árið 2017 að leggja helstu andstæðingunum lið. Ég var að vona að VG myndu draga úr ,,tanntökunni" Gaf þeim frið í marga mánuði, en því miður. Hvort það voru stólarnir, völdin og forréttindi sem samstarfið gaf þeim, veit ég ekki. Þau verða að svara fyrir það.

    Afskaplega margir vilja fá að taka þátt í partýinu sem fráfarandi ríkisstjórn bauð sumum í og öðrum ekki.

    Við erum að sjá það þessa dagana að það er engin eðlismunur á því sem er að gerast beggja vegna Atlantsála og hérna heima.

    Spillingin er farin að éta börnin sín og því miður hef ég enga trú á að dugmiklir konur kunni að breyta því, þótt ósk mín snúist um það.

    Ríkisstjórn sem er tilbúin að ráðast að náttúru landsins til þess eins að seðja græðgin, það er ekki ríkisstjórnin mín.

    Ég held að okkur sé brýnast að rifja upp hvernig forfeður okkar geymdu matvæli og hvernig við getum notað þau verkfæri sem ekki ganga fyrir rafmagni. Því ef heldur áfram sem horfir, þá tekur það hvorki Rússa né Bandaríkjamenn margar mínútur að slökkva hér á öllu.

    Kapítalisminn er farinn að lifa sínu sjálfstæða lífi. Fáist hlutirnir ekki fyrir peninga, þá eru þeir teknir með valdi.

    Við sjáum hvað er að gerast á Seyðisfirði, Hafnarfirði, Hvalfirðinum, Þorlákshöfn og nú skal ráðist að neðri hluta Þjórsár 😪😪😪
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á vettvangi

Vont að senda varnarlausar konur aftur í sömu stöðu
Á vettvangi

Vont að senda varn­ar­lausar konur aftur í sömu stöðu

Jóhanna Erla Guð­jóns­dóttir er félags­ráð­gjafi á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans. Þar tekst hún á við myrk­ustu hliðar mann­lífs­ins, en seg­ist helst reið­ast yfir því að rekast á sömu vegg­ina aftur og aftur, þegar úrræðin eru engin. Til dæmis varð­andi konur sem búa á göt­unni, verða fyrir ofbeldi og eiga sér hvergi skjól. Þrátt fyrir áskor­anir segir hún starfið það besta í heimi.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár