Sam­herjar á góðri stundu Guðrún Haf­steins­dóttir og Áslaug Arna Sgur­björns­dóttir hafa háð heið­ar­lega bar­áttu að mati þeirra sem Heim­ildin ræddi við. Hún hefur veirð mál­efna­leg og athygl­is­verð. Mynd: Golli

Sögulegt einvígi innan Sjálfstæðisflokksins

Tveir öfl­ugir fram­bjóð­endur sækj­ast eftir for­manns­emb­ætti elsta stjórn­mála­afls Íslands, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir og Guðrún Haf­steins­dóttir. Þar sem þær eru báðar konur er ljóst að ald­ar­gömul hefð verði brotin á fund­inum. Þá gæti flokk­ur­inn eign­ast sinn fyrsta for­mann sem er ekki búsettur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, nái Guðrún kjöri.

Ólík öfl takast á innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins þegar kemur að for­manns­kosn­ing­unum sem fram fara næsta sunnu­dag. Flokk­ur­inn stendur á tíma­mótum eftir að hafa fengið undir tutt­ugu pró­sent í síð­ustu kosn­ingum, sem er lægsta fylgið frá upp­hafi. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er líka utan rík­is­stjórnar, sem er sjald­gæft í íslenskum stjórn­málum. 

For­manns­efnin eru bæði fram­bæri­leg, og sögu­leg þegar kemur að for­ystu flokks­ins, en báðir fram­bjóð­endur eru konur. Annars vegar býður Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir sig fram, sem er lýst sem metn­að­ar­fullri mann­eskju sem fyllir fólk anda­gift úr ræðu­stólnum. Hún varð rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins 25 ára gömul og var orðin dóms­mála­ráð­herra fyrir þrí­tugt, eða 29 ára gömul. 

Hins vegar er það Guðrún Haf­steins­dóttir, sem er þaul­reynd úr atvinnu­líf­inu og nýtur mik­illar virð­ingar á því sviði. Hún fékk fyr­ir­tæki fjöl­skyldu sinnar, Kjörís, í fangið aðeins 23 ára gömul. Það hefur vaxið sam­hliða Guðrúnu og orðið eitt far­sælasta fyr­ir­tæki lands­ins. Hún var dóms­mála­ráð­herra frá árinu 2023 til 2024. 

…
Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Grétar Reynisson skrifaði
    Strax eftir klúðrið við Íslandsbankasöluna var Guðrún Hafsteinsdóttir send i viðtal á RUV þar sem hún mærði formann Sjálfstæðisflokksins og sagði nánast allt sem BjarN1 hefði gert vært hafið yfir gagnrýni. Ekkert hafði málið þó verið rannsakað á þeim tímapunkti.
    Hún nánast flaðraði upp um fjarverandi formanninn í beinni, kannski vorkunn enda var hún þá enn að bíða eftir að honum þóknaðist að skipta henni inná fyrir Jón Gunnarsson í dómsmálaráðuneytinu.
    Ekki laust við að manni yrði hálf flökurt að horfa upp á þetta.
    Einhverra hluta kom þetta upp í hugann við að sjá og heyra framkomu JD Vance þegar hann og D. tRump urðu sér til ævarandi skammar í svokölluðu samtali við forseta Úkraínu, Volodymyr Zelenskyy.
    Lágkúran var algjör, þarna flaðraði JD Vance upp um Trump eins og púðluhundur sem vonast eftir klóri og klappi eða hundanamminu sínu.
    En aftur að Sjálfstæðisflokknum; hversu illa er komið fyrir þeim söfnuði þegar manneskja eins og frú Hafsteinsdóttir er talin hafa raunverulega möguleika á sigri i formannskjöri flokksins ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár