Lækningar eiga að snúast um meira en að halda fólki á lífi

„Lífs­stíls­lækn­ingar hjálpa fólki að við­halda grunn­stoðum heils­unnar,“ segir dr. Thomas Ragnar Wood, bresk-íslenskur læknir og pró­fessor í barna­lækn­ingum og tauga­vís­indum, sem hefur einnig sér­hæft sig í lífs­stíls­lækn­ingum, það er lækn­ingum sem hafa það að mark­miði að tryggja heilsu á öllum ævi­skeiðum.

Lækningar eiga að snúast um meira en að halda fólki á lífi
Tækifæri til lífs­stíls­breyt­inga Thomas Ragnar Wood ólst upp í Banda­ríkj­unum og Bret­landi. Hann á íslenska móður og fékk fisk, lifur og kart­öflur í mat­inn í Íslands­heim­sóknum til ömmu og afa, áður en hann var sendur í sum­ar­búðir. Lífstíls­lækn­ingar eru honum hug­leiknar og hann segir íslenskt sam­fé­lag búa yfir mörgum styrk­leikum sem greiða leið­ina fyrir inn­leið­ingu lífs­stíls­lækn­inga, meðal ann­ars sem fel­ast í matar­æði og úti­vist. Mynd: Golli

Tommi.“

Þannig kynnir dr. Thomas Ragnar Wood sig fyrir blaða­manni á Lækna­dögum þar sem hann var að leggja loka­hönd á und­ir­bún­ing fyrir mál­stofu þar sem hann fjall­aði um lífs­stíls­lækn­ingar. „Mamma er íslensk,“ segir hann á íslensku áður en hann skiptir yfir í ensk­una, það er honum eðl­is­læg­ara. „Pabbi er breskur og við bjuggum í Bret­landi en lengst af í Banda­ríkj­unum en mamma flutti aftur til Íslands fyrir 15 árum.“

Tommy, eins og hann er gjarnan kall­aður (með y, ekki i), er læknir og pró­fessor í barna­lækn­ingum og tauga­vís­indum við Washington-háskóla og stofn­andi og stjórn­andi Félags lífs­stíls­lækn­inga á Bret­landi (e. British Society of Lifestyle Medicine), en síð­ustu ár hefur hann sér­hæft sig í lífs­stíls­lækn­ingum. Erindi hans á nýaf­stöðnum Lækna­dögum fjall­aði einmitt um lífs­stíls­lækn­ingar, ann­ars vegar um vís­inda­legan grunn þeirra og hins vegar um tauga­vís­indin sem liggja þar að baki. 

Lífs­stíls­lækn­ingar (e. Lifestyle Medicine) hafa verið að …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Andrés Arnalds skrifaði
    Góð umfjöllun um mikilvægt efni.
    Því tengt vil ég vekja athygli á "hreyfingu" eða nálgun í samþættingu félagslegrar- og heilbrigðisþjónustu sem nýtur vaxandi fylgis. Kallað "Social Prescribing".
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár