Andrés Ingi til Dýraverndunarsambandsins

Andrés Ingi Jónsson, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata, hefur verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri Dýra­vernd­un­ar­sam­bands Íslands. Við ráðn­ing­una var litið til þess hvernig Andrés hefur sem þing­maður beitt sér fyrir mann­rétt­indum, umhverf­is­vernd og dýra­vel­ferð.

Andrés Ingi til Dýraverndunarsambandsins
Andrés Ingi Jónsson hefur verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri Dýra­vernd­ar­sam­bands Íslands. Mynd: Davíð Þór

Andrés Ingi Jónsson hefur verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri Dýra­vernd­ar­sam­bands Íslands (DÍS). Hann hefur þegar hafið störf. DÍS er óháð lands­sam­tök sem beita sér fyrir bættri vel­ferð dýra. Sam­bandið stendur vörð um lög­vernd dýra og stuðlar að góðri laga­setn­ingu og reglu­bundnu opin­beru eft­ir­liti til verndar dýrum. DÍS var stofnað þann 13. júlí 1914 og fagn­aði því 110 árum á síð­asta ári. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá sam­band­inu.

Andrés Ingi var þing­maður Pírata frá árinu 2021, þing­maður Vinstri grænna á árunum 2016-2019 og sat þess á milli sem þing­maður utan þing­flokka. Andrés Ingi er með meistara­gráðu í alþjóða­stjórn­málum frá háskól­anum í Sussex.

Í til­kynn­ing­unni segir að sem þing­maður hefur Andrés Ingi beitt sér ötul­lega fyrir mál­efnum mann­rétt­inda, umhverf­is­verndar og dýra­vel­ferðar sem stjórn DÍS horfði sér­stak­lega til við ráðn­ingu hans sem fram­kvæmda­stjóra sam­bands­ins.

Fram­kvæmda­stjóri DÍS ber ábyrgð á dag­legum rekstri sam­bands­ins, fjár­öflun, stefnu­mótun í sam­starfi við stjórn og kemur fyrir hönd DÍS í opin­berri umræðu.

„Við bjóðum Andrés Inga hjart­an­lega vel­kom­inn og hlökkum til sam­starfs­ins. Starf Dýra­vernd­ar­sam­bands­ins hefur verið að vaxa á und­an­förnum árum, vit­und almenn­ings er sífellt að aukast og verk­efnum að fjölga, þannig að við sjáum mikil tæki­færi í því að styrkja félagið á næstu miss­erum,“ er haft eftir Lindu Karen Gunn­ars­dóttur, for­manni Dýra­vernd­ar­sam­bands Íslands.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hrefna Sigurjónsdóttir skrifaði
    Frábærar fréttir. Ég sem fyrrverandi stjórnarmaður í DÍS fagna því að samtökin geti ráðið svona öflugan mann sem framkvæmdastjóra í fullt starf..
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár