Mynd: Golli

Árið í myndum: Fólkið sem flúði og fólkið sem mótmælti

Íslend­ingar kynnt­ust þó nokkrum Palest­ínu­mönnum á árinu, fólki sem flúði sprengjuregn Ísra­els­hers í heima­landi þeirra. Fjöl­margir stóðu upp og köll­uðu eftir því að íslensk stjórn­völd stigu fastar til jarðar hvað varð­aði and­stöðu við stríðið og ein­kennd­ist fyrri hluti árs­ins af mót­mælum. Hér er farið yfir þessa atburði í myndum og nokkrum orðum.

Þann sjö­unda októ­ber árið 2023 réð­ust liðs­menn Hamas inn í Ísrael. 1.200 manns, flestir almennir borg­arar, voru drepnir. Liðsmenn Hamas tóku 251 gísl.

Ísraelsk stjórn­völd brugð­ust við með því að ráð­ast af áður óséðu afli á Gaza svæðið. Að minnsta kosti 45.000 Palest­ínu­menn hafa verið drepnir og ríf­lega 100.000 hafa slasast. 

MótmæltÚr tjald­inu á Aust­ur­velli.

Hópur Íslend­inga reis upp strax í októ­ber og kall­aði eftir því að íslensk stjórn­völd slitu sam­bandi sínu við Ísrael vegna atburð­anna. Þessi hópur hélt áfram að mót­mæla og ein­kennd­ist fyrri hluti þessa árs af slíkum mót­mælum, á vegum Íslend­inga og Palest­ínu­manna. 

Því þeim fjölg­aði á Íslandi á þessu ári. 101 Palest­ínu­maður sótti hér um hæli og 59 fengu vernd á fyrstu 11 mán­uðum árs­ins. Þá fengu þó nokkrar fjöl­skyldur sam­þykkta sam­ein­ingu. 

Sú sam­ein­ing gekk ekki áfalla­laust fyrir sig. Fólk sem hafði fengið sam­þykkta slíka sam­ein­ingu lenti í miklum vand­ræðum með að koma ást­vinum sínum út af Gaza svæð­inu, til Egypta­lands og þaðan til Íslands.

Íslend­ingar og Palest­ínu­menn mót­mæltu þessu og köll­uðu eftir því að íslensk stjórn­völd stigu inn í og hjálp­uðu fólk­inu sem heima sat að koma ást­vinum sínum í öruggt skjól. 

Þetta var meðal ann­ars gert með tjald­búðum sem hóp­ur­inn sló upp á Aust­ur­velli, fyrir utan Alþing­is­húsið. 

Sam­ein­ingHowayda, Abeer, Hani, Adeal og Ameera voru sam­einuð í byrjun árs. Íslenskir sjálf­boða­liðar höfðu farið út til Gaza til þess að sækja mæðgurnar. Heima beið fað­ir­inn Hani.

Það tók sinn tíma að koma Palest­ínu­mönn­unum heim og nokkrir íslenskir sjálf­boða­liðar flugu til Egypta­lands og liðk­uðu þar fyrir því að koma fjöl­skyldu­með­limum Palest­ínu­manna á Íslandi út af Gazasvæðinu og upp í flug­vél til Íslands. Það gerðu jafn­framt full­trúar íslenskra stjórn­valda í kjöl­farið. 

YazanTamimi fjöl­skyldan palest­ínska á heim­ili sínu í Graf­ar­vogi. Stór hópur mót­mælti fyr­ir­hug­aðri brott­vísun drengs­ins og loks féllust íslensk stjórn­völd á að hann fengi hér að vera.

Mál Yazans Tamimis vakti veru­lega athygli á síð­ari hluta þessa árs. Yazan er 12 ára gam­all palest­ínskur drengur sem þjá­ist af tauga­hrörn­un­ar­sjúk­dómnum Duchenne. Hann sótti hér um hæli ásamt for­eldrum sínum en var hafnað á þeim grund­velli að fjöl­skyldan hafði stoppað á Spáni og verið inn­rituð þar á leið sinni til Íslands. Fjöl­skyldan sagði sína sögu í fjöl­miðlum og var fyr­ir­hug­aðri brott­vísun hans mót­mælt ítrekað. Brott­vísun hans var fyr­ir­huguð að næt­ur­lagi um miðjan sept­em­ber­mánuð en ráð­herrar í íslensku rík­is­stjórn­inni gripu inn í. Tamimi fjöl­skyldan fékk loks hæli hér á landi.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Uppgjör ársins 2024

Erlendur annáll: Kosningar og ófriður lituðu árið
ErlentUppgjör ársins 2024

Erlendur ann­áll: Kosn­ingar og ófriður lit­uðu árið

Pia Hansson, for­stöðu­maður Alþjóða­mála­stofn­unar Háskóla Íslands, segir að árið 2024 hafi verið óvenju við­burð­ar­ríkt ár. Árið ein­kennd­ist af kosn­ingum þar sem sitj­andi vald­höfum var refsað og blóð­ugum stríðs­á­tökum sem stig­mögn­uð­ust á árinu. Pia seg­ist miðað við það sem undan hefur gengið í heims­mál­unum fari hún því miður ekki full bjart­sýni inn í nýja árið.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár