Höll­urnar Á tíma­bili fór Halla Hrund Loga­dóttir með him­in­skautum í skoð­ana­könn­unum og hafði for­yst­una. Þegar þessi mynd var tekin bak­sviðs á kapp­ræð­unum á RÚV 3. maí mæld­ist Halla Hrund með mest fylgi, eða 36 pró­sent, en Halla T aðeins 4 pró­sent. Mynd: Golli

Árið í myndum: Baráttan um Bessastaði

Þjóðin gekk að kjör­borð­inu og valdi sér nýjan for­seta í sumar. Tólf manns voru í fram­boði, þar á meðal nýhættur for­sæt­is­ráð­herra og tvær konur sem heita Halla. Hér er farið yfir bar­átt­una um Bessa­staði í myndum og nokkrum orðum.

Á fyrsta degi árs­ins 2024 til­kynnti Guðni Th. Jóhann­es­son, sitj­andi for­seti Íslands, í nýársávarpi sínu að hann hygð­ist ekki sitja annað kjör­tíma­bil á Bessa­stöðum. Hann hafði þá verið for­seti frá árinu 2016.

Í fram­hald­inu stigu fjöl­margir fram og freist­uðu þess að ger­ast arf­takar hans. Halla Tóm­as­dóttir, for­stjóri B Team,  end­aði þó á að bera sigur úr býtum í gríð­ar­lega spenn­andi kosn­inga­bar­áttu.

Fyrsta ávarpiðAnnar kven­kyns for­seti Íslands horfir á mynd af þeim fyrsta. Myndin er tekin rétt áður en Halla hélt fyrsta ávarp sitt sem for­seti á svöl­unum á heim­ili sínu, dag­inn eftir kjör­dag.

Strax í fyrstu viku jan­ú­ar­mán­uðar höfðu þjóð­þekktir ein­stak­lingar svo sem athafna­mað­ur­inn Ástþór Magn­ús­son og hæsta­rétt­ar­lög­mað­ur­inn og vara­þing­mað­ur­inn Arnar Þór Jónsson til­kynnt um fram­boð sín til emb­ætt­is­ins. Talsvert fleiri áttu eftir að bæt­ast í hóp­inn, en þegar upp var staðið bár­ust tólf gild fram­boð til for­seta Íslands.

Baldur Þór­hall­son og herraStjórn­mála­fræði­pró­fess­or­inn Baldur Þór­halls­son til­kynnti um fram­boð sitt í Bæj­ar­bíói í Hafn­ar­firði í mars­mán­uði.

Fáeinum dögum áður en Baldur Þór­halls­son til­kynnti fram­boð sitt hafði for­stjór­inn Halla Tóm­as­dóttir sagst ætla að bjóða sig fram í annað skiptið. Hún hafði lotið í lægra haldi fyrir Guðna Th. í kosn­ing­unum 2016. Þá gáfu leik­ar­inn Jón Gnarr og orku­mála­stjór­inn Halla Hrund Loga­dóttir einnig kost á sér þegar á leið vorið. 

SjálfaFram­bjóð­endur tóku saman mynd eftir að hafa mæst í kapp­ræðum í Pressu, dæg­ur­mála­þætti Heim­ild­ar­innar.

Stór­tíð­indi þóttu þegar for­sæt­is­ráð­herr­ann Katrín Jak­obs­dóttir til­kynnti í apríl að hún hygð­ist biðj­ast lausnar fyrir sig og sitt ráðu­neyti til þess að gefa kost á sér til for­seta. Þessi ákvörðun hafði það í för með sér að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, varð í annað sinn for­sæt­is­ráð­herra. 

Eftir að Katrín bauð sig fram mæld­ist hún, sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum, vera sig­ur­strang­leg­asti for­seta­fram­bjóð­and­inn. Hún átti þó erf­ið­ara upp­dráttar eftir því sem á leið kosn­inga­bar­átt­una, meðal ann­ars vegna þeirra óvin­sælda sem rík­is­stjórnin, sem hún hafði leitt, hafði bakað sér. 

Slægðu fiskTíu fram­bjóð­endur glímdu við þrautir, svo sem að slægja fisk, í Brimi við Granda­garð örfáum dögum fyrir kosn­ingar. Hér má sjá Arnar Þór Jónsson og Ástþór Magn­ús­son fylgj­ast grannt með sýni­kennslu.

Umtals­verðar svipt­ingar urðu á fylgi fram­bjóð­enda á meðan kosn­inga­bar­átt­unni stóð. Í lok apríl mæld­ist Katrín með mest fylgi en Baldur Þór­halls­son mæld­ist rétt fyrir neðan hana. Þegar komið var fram í maí hafði Halla Hrund hins vegar tekið fram úr þeim báðum. Það fylgi átti þó eftir að dala all­veru­lega og hafn­aði hún að lokum í þriðja sæti.  

Þegar komið var á kjör­dag hafði Halla T náð til sín öðru sæt­inu í skoð­ana­könn­unum á eftir Katrínu. Útséð virt­ist að önnur hvor þeirra myndi verða næsti for­seti lýð­veld­is­ins.

Keppi­nautarKatrín Jak­obs­dóttir og Halla Tóm­as­dóttir lentu í fyrsta og öðru sæti í kosn­ing­unum. Skoð­ana­kann­anir spáðu Katrínu sigri en Halla bar sigur úr býtum.

Umtals­verð spenna var áður en kosn­inga­vakan hófst að kvöldi 1. júní. Eftir að tölur fóru að ber­ast varð þó fljót­lega ljóst hvernig úrslitin myndu ráð­ast. 

Nýr for­seti fagnar sigriHalla, eig­in­maður hennar og börn bregð­ast við tölum á kosn­inga­nótt.

Þegar klukkan var orðin eitt um nótt hafði Halla Tóm­as­dóttir fengið flest atkvæði í öllum kjör­dæmum. Eftir að fyrstu tölur höfðu verið kunn­gjörðar sagði Katrín að sér sýnd­ist stefna í að Halla Tóm­as­dóttir yrði næsti for­seti Íslands. Óskaði for­sæt­is­ráð­herr­ann fyrr­ver­andi keppi­nauti sínum til ham­ingju.

Halla Tóm­as­dóttir var sett í emb­ætti þann 1. ágúst. 

Sig­ur­vímaMúgur og marg­menni var saman kom­inn til að fagna með Höllu T á kosn­inga­vöku hennar í Grósku.
Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Uppgjör ársins 2024

Erlendur annáll: Kosningar og ófriður lituðu árið
ErlentUppgjör ársins 2024

Erlendur ann­áll: Kosn­ingar og ófriður lit­uðu árið

Pia Hansson, for­stöðu­maður Alþjóða­mála­stofn­unar Háskóla Íslands, segir að árið 2024 hafi verið óvenju við­burð­ar­ríkt ár. Árið ein­kennd­ist af kosn­ingum þar sem sitj­andi vald­höfum var refsað og blóð­ugum stríðs­á­tökum sem stig­mögn­uð­ust á árinu. Pia seg­ist miðað við það sem undan hefur gengið í heims­mál­unum fari hún því miður ekki full bjart­sýni inn í nýja árið.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár