Í tvo mán­uði á ári neyð­ast rit­höf­undar til að ger­ast far­and­sölu­menn. Ef þeir eru á annað borð að gefa út bók. Mynd: Golli

Engar falsfréttir í skáldskap

Hvað er íslensk bók? Ber höf­undum að slaufa lönd sem rit­skoða bækur og er Kiljan of áhrifa­mik­ill í bók­menntaum­ræð­unni? Rit­höf­undar ræða þetta og fleira í skáld­skap­ar­síld bóka­blaðs­ins í ár. Öll með bók í jóla­bóka­flóð­inu núna; þau Sindri Freysson, Hildur Knúts­dóttir, Eiríkur Bergmann og Sunna Dís Más­dóttir.

Jóla­bóka­flóð er eld­gömul hefð en blaktir nú í breyt­ingum, bæði umhverfið og neyslu­venjur kaup­enda hafa breyst. Upplifið þið að jóla­bóka­flóðið sé meiri barn­ingur en áður eða hvernig blasir það við ykkur núna?

Sindri: „Ég er búinn að vera að í rúm­lega þrjá­tíu ár. Átti þrjá­tíu ára afmæli fyrir tveimur árum síðan. Ég held að það sem gerst hafi síð­ustu árin sé að titlum hefur fjölgað – sem teng­ist þessum styrkjum hins opin­bera til útgef­enda. Það er rótin að þessu. Því nú getur útgef­andi gefið út bækur án þess að bera mjög skarðan hlut frá borði.

Það sem hefur gerst síð­ustu árin er að fyrir kannski tutt­ugu árum síðan voru titlar að selj­ast í 15 til 20.000 ein­tökum, þeir sem mest seld­ust. En nú er leitun að titli sem fer yfir 3000. Fimm titlar, heyrði ég, í fyrra, fóru yfir 3000 ein­tök.“

Hildur: „Ég held …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • RE
    Regína Eiríksdóttir skrifaði
    Kilja hefur engin áhrif á okkur sem lesa. Ég kaupi þær bækur sem ég vil lesa. Áður keypti ég kannski 6 til 8 bækur og naut þess að sjá hvað beid mín. En svo fóru forlögin að gefa fáránlega afslætti á nýju ári og þá byrjaði ég að kaupa jafnóðum og eg les.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár