Bára Hlín býður heim: Jólahefðir og mínimalismi
Arininn heill­aði Báru þegar hjónin skoð­uðu húsið. Hann er klæddur Drápu­hlíð­ar­grjóti. Mynd: Golli

Bára Hlín býður heim: Jólahefðir og mínimalismi

Ung hjón festu í hitti­fyrra kaup á ein­lyftu, stíl­hreinu ein­býl­is­húsi. Þau tóku húsið í gegn, breyttu skipu­lag­inu og í dag ræður þar mínimal­ism­inn ríkjum. Bára Hlín Vign­is­dóttir er útstill­ing­ar­hönn­uður og er búin að skreyta svo­lítið fyrir jólin. Útkoman er stíl­hrein og mínimal­ísk, eins og húsið sjálft. Bára er frá Grinda­vík og hennar nán­ustu misstu sumir heim­ili sín vegna nátt­úru­ham­fara. Hún er að ná sér eftir ham­far­irnar, enda áfall fyrir þau öll.

Bára Hlín Vign­is­dóttir er ættuð frá Grindavík, bænum sem jarð­hrær­ingar og logar úr neðra léku grátt. Sjálf hélt hún 22 ára gömul til Dan­merkur til að nema útstill­ing­ar­hönnun og hefur unnið við ýmis versl­un­ar­störf síðan. Hún er þriggja barna móðir og hefur und­an­farin 17 ár búið í Hafn­ar­firði, þar sem hraun er víða að finna. 

Fyrir tveimur árum ákváðu hún og eign­maður hennar, Egill Fannar Krist­jáns­son mat­reiðslu­meist­ari, að stækka við sig til að yngsta barnið fengi sér­her­bergi. Þau bjuggu þá í blokkar­í­búð í öðru hverfi í bænum en hún vildi fara aftur í sama hverfi og hún hafði búið með fyrr­ver­andi sam­býl­is­manni sínum, þar sem eldri börnin bjuggu um ára­bil. „Mér finnst þetta hverfi vera þar sem ég á heima. Eldri börnin mín voru í leik­skóla í hverf­inu,“ en þau eru núna 17 og 15 ára. Yngsta barnið er sex ára. 

Horft út …
Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár