Allt það helsta úr leiðtogakappræðum Heimildarinnar

Leið­toga­kapp­ræður Heim­ild­ar­innar fóru fram fyrir fullum sal áhorf­enda í Tjarn­ar­bíó í gær­kvöldi. Full­trúar þeirra níu fram­boða sem mælst hafa með yfir 2,5 pró­senta fylgi á lands­vísu í kosn­inga­spá Heim­ild­ar­innar og dr. Baldurs Héð­ins­sonar sendu full­trúa á svæðið.

Allt það helsta úr leiðtogakappræðum Heimildarinnar
Leið­toga­kapp­ræður Heim­ild­ar­innar fóru fram í beinni útsend­ingu í Tjarn­ar­bíói í gær­kvöldi fyrir fullum sal af fólki og sköp­uð­ust líf­legar umræður um það helsta sem brennur á kjós­endum fyrir kosn­ing­arnar. Mynd: Golli

Leið­toga­kapp­ræður Heim­ild­ar­innar fóru fram fyrir fullum sal áhorf­enda í Tjarn­ar­bíó í gær­kvöldi. Full­trúar þeirra níu fram­boða sem mælst hafa með yfir 2,5 pró­senta fylgi á lands­vísu í kosn­inga­spá Heim­ild­ar­innar og dr. Baldurs Héð­ins­sonar tóku þátt. 

Kvöldið hófst á umræðu um efna­hags­mál, full­trúar stjórn­ar­flokk­anna voru spurðir að því af hverju ekki hefði tek­ist betur að ná böndum á verð­bólgu og hefja vaxta­lækk­un­ar­ferli Seðla­bank­ans en raun ber vitni. 

Allir flokk­arnir sem ráðið hafa land­inu und­an­farin 7 ár sendu vara­for­menn sína í leið­toga­kapp­ræður Heim­ild­ar­innar og tóku þau Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, Lilja Alfreðs­dóttir og Guð­mundur Ingi Guð­brands­son öll til varna fyrir verk rík­is­stjórn­anna sem Katrín Jak­obs­dóttir og Bjarni Bene­dikts­son hafa leitt und­an­farin ár. 

Þórdís Kolbrún utan­rík­is­ráð­herra lét þess getið að mik­il­vægt væri að halda því til haga að áföll hefðu dunið yfir und­an­farin ár. Ríkið hefði til dæmis þurft að …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Furðuleg þessi rök Lilju gegn ESB að þar sé hagvöxtur minni og atvinnuleysi meira rétt eins og að að hagvöxtur myndi minnka og atvinnuleysi aukast með inngöngu í ESB.
    Ástandið í ESB-löndum er eins mismunandi og löndin eru mörg. Efnahagsástandið er mun betra en hér í mörgum ESB-löndum en verra í öðrum. En almennt má segja að það hafi batnað með inngöngu í ESB.
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár