Arfleifð slitinnar ríkisstjórnar

Hvað tókst rík­is­stjórn­inni að klára og hvað ekki? „Þetta var ekki þannig rík­is­stjórn sem var að fara í ein­hverjar rót­tækar breyt­ingar eða upp­stokkun á kerfum heldur halda við­horf­inu óbreyttu,“ segir Ólafur Þ. Harð­ar­son stjórn­mála­fræð­ingur.

Arfleifð slitinnar ríkisstjórnar
Hvað stendur eftir? Sjö ára valda­tíð rík­is­stjórn­ar­innar er nú lokið og kosn­ingar verða haldnar í lok nóv­em­ber. Stjórnin var að mörgu leyti óvenju­leg og undir það síð­asta gekk stjórn­ar­flokk­unum illa að koma sér saman um mik­il­væg mál. Mynd: Golli

Sjö ára langri stjórn­ar­tíð rík­is­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Vinstri grænna er nú lokið og kosn­ingar á næsta leiti. Af því til­efni er vert að líta yfir far­inn veg og kanna hvaða mál rík­is­stjórnin náði að leiða til lykta áður en stjórn­inni var slitið og hvaða mál náði ekki að klára.

Í inn­gangi seinni stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks frá árinu 2021 segir að á fyrsta kjör­tíma­bili sínu, árið 2017 til 2021, hafi rík­is­stjórnin lagt áherslu á að „byggja upp traust í sam­fé­lag­inu og efla inn­viði ásamt því að tryggja póli­tískan og efna­hags­legan stöð­ug­leika“.

Í milli­tíð­inni gekk sam­fé­lagið í gegnum ýmis óvænt áföll á borð við heims­far­aldur og efna­hag­skreppu. Með þá reynslu og lær­dóm á bak­inu end­ur­nýj­uðu flokk­arnir þrír sam­starf sitt og áhersla var lögð á að „horfa til fram­tíðar og sækja fram í þágu vel­sældar“.

Grund­völlur þess­ara fram­fara var þó sem fyrr jafn­vægið sem þessir …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stjórnarslit 2024

Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.
Ekki lengur hægt að gera atlögu að Bjarna fyrir kosningar
GreiningStjórnarslit 2024

Ekki lengur hægt að gera atlögu að Bjarna fyrir kosn­ingar

Síðan Bjarni Bene­dikts­son tók við for­mennsku í Sjálf­stæð­is­flokknum hefur því ítrekað verið velt upp hvort tími hans sé lið­inn. Enn sem komið er hefur sand­ur­inn í hans póli­tíska stund­ar­glasi ekki runnið út. Hann virð­ist ná að snúa því aftur og aftur rétt áður en síð­ustu sand­kornin detta. Með því að slíta stjórn­ar­sam­starf­inu styrkti Bjarni stöðu sína og kom í veg fyrir inn­an­búð­ar­at­lögu gegn sér fyrir kosn­ingar, segir stjórn­mála­fræð­ingur.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár