Albert Guðmundsson sýknaður

Albert Guð­munds­son fót­bolta­maður var sýkn­aður í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur rétt í þessu. Hann hafði verið ákærður fyrir nauðgun. Nú er í höndum rík­is­sak­sókn­ara að ákveða hvort mál­inu verður áfrýjað eða ekki.

Albert Guðmundsson sýknaður

Albert Guð­munds­son, atvinnu­maður í fót­bolta var rétt í þessu sýkn­aður af ákæru um nauðgun í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur. 

Dómurinn var kveð­inn upp í Hér­aðs­dómi rétt fyrir klukkan eitt í dag, rúmu ári eftir að fréttir bár­ust af því að Albert Guð­munds­son hefði verið kærður fyrir kyn­ferð­is­brot. 

„Þetta breytir engu um upp­lifun brota­þola sem stendur að sjálf­sögðu óhögguð. Þetta mál er saka­mál og það fjallar ein­göngu um það hvort ströng skil­yrði refs­ingar séu upp­fyllt. Það er þá nið­ur­staðan að þau séu ekki upp­fyllt.“

Þetta segir Eva Bryndís Helga­dóttir, rétt­ar­gæslu­maður kon­unnar sem kærði Albert, í sam­tali við Heim­ild­ina. Hún segir að nú sé í höndum rík­is­sak­sókn­ara að ákveða hvort málið fari í áfrýjun eða ekki. 

Eru þetta von­brigði?

„Ég myndi aldrei lýsa því þannig. Það eru auð­vitað þung og erfið skref að stíga fram og kæra menn, ekki síst sem hafa verið fjöl­skyldu­vinir til margra ára. Þannig að mér finnst brota­þoli í þessu máli hafa sýnt með ein­dæmum hug­rekki og styrk og kjark að fara hina lög­form­legu réttu leið með sína upp­lifun. Sem á að fara.“

Eina lögfræðilega rétta niðurstaðan

„Þetta er hár­rétt lög­fræði­leg nið­ur­staða. Vel rök­studdur dómur. Við fögnum þessu,“ segir Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, lög­maður Alberts. 

„Ég hef haft ákveðna skoðun á þessu máli frá fyrstu stundu og ég tel að Hér­aðs­dómur hafi í þessu til­viki kom­ist að hinni einu og sönnu, lög­fræði­lega réttu nið­ur­stöðu í mál­inu, og það var að sýkna.“

Aðspurður segir Vil­hjálmur það verða að koma í ljós hvernig fram­haldið verði. „Fyrsta skrefið er það að rík­is­sak­sókn­ari verður að taka ákvörðun um það hvort að mál­inu verður áfrýjað eða ekki. Rík­is­sak­sókn­ari hefur fjórar vikur til þess með hlið­sjón af ítar­legum rök­stuðn­ingi.“ 

Málið fyrst fellt niður

Það var í lok ágúst í fyrra sem greint var frá því í fjöl­miðlum hér á landi. DV sagði fyrst frá mál­inu. 

Í byrjun þessa árs felldi hér­aðs­sak­sókn­ari málið niður en sú ákvörðun var kærð til rík­is­sak­sókn­ara sem lagði til við hér­aðs­sak­sókn­ara að ákæra yrði gefin út. 

Í byrjun júlí á þessu ári var Albert ákærður fyrir nauðgun með því að hafa haft önnur kyn­ferð­is­mök en sam­ræði við konu án hennar sam­þykkis. Ákæran var þing­fest í hér­aðs­dómi Reykja­víkur 3. júlí og aðal­með­ferð í mál­inu fór fram í sept­em­ber. Albert neit­aði sök. 

Ákæru­valdið krafð­ist þess að Albert yrði dæmdur til refs­ingar og greiðslu sak­ar­kostn­aðar. Þá var hann kraf­inn um að greiða kon­unni þrjár millj­ónir í miska­bætur.

Fréttin hefur verið upp­færð.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár