Það sem bankarnir hafa grætt á hækkunarskeiðinu
Lækk­un­ar­skeiðið hafið Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands lækk­aði vexti í fyrsta sinn síðan bank­inn hóf að hækka vexti um mitt ár 2021. Á þessu hækk­un­ar­skeiði hafa vaxta­greiðslur heim­il­anna auk­ist jafnt og þétt. Mynd: Golli

Það sem bankarnir hafa grætt á hækkunarskeiðinu

Fyrr í vik­unni batt pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands endi á þriggja og hálfs árs langt stýri­vaxta­hækk­un­ar­skeið. Meg­in­vextir bank­ans voru lækk­aðir um 0,25 pró­sent en höfðu staðið óbreyttir í 9,25 pró­sentum sam­fleytt í 58 vikur. Frá 2021 til júní á þessu ári hafa þrír stærstu við­skipta­bankar lands­ins halað inn 462 millj­örðum króna í hreinar vaxta­tekjur.

Stýri­vextir Seðla­banka Íslands voru lækk­aðir í fyrsta sinn í rúm þrjú ár á mið­viku­dag. Á kynn­ing­ar­fundi pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands var þó lögð áhersla á að bank­inn myndi fara sér hægt og gæta fyllstu var­úðar í lækk­un­ar­ferl­inu.

Slegið var á vænt­ingar um bratt­ari vaxta­lækkun eða að vextir verði yfir­leitt lækk­aðir á næsta fundi nefnd­ar­innar sem er dag­settur 20. nóv­em­ber. Ákvörðun pen­inga­stefnu­nefndar mun sem fyrr ráð­ast af þróun efna­hags­um­svifa, verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­inga.

Þrátt fyrir varnagla pen­inga­stefnu­nefnd­ar­innar má segja að runnið sé upp nýtt skeið í efna­hags­líf­inu. Á slíkum tíma­mótum er athygl­is­vert að líta yfir far­inn veg og hvernig helstu við­skipta­bankar lands­ins hafa hagn­ast á stýri­vaxta­hækk­un­ar­skeið­inu og kostn­að­ur­inn hefur lagst á heim­ilin í land­inu.

462 milljarðar króna í hreinar vaxtatekjur 

Frá 2021 til fyrri helm­ings þessa árs nam sam­an­lagður hagn­aður Íslands­banka, Arion banka og Lands­banka 268,4 millj­örðum króna. Hagn­að­ur­inn er að miklu leyti kom­inn til af vaxta­mun bank­anna sem …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár