H
átíðin State of Art skartar óvenju skapandi dagskrá, mögnuðu tónlistarfólki og leik sem sprúðlar.
Á hátíðinni mun Bjarni Frímann Bjarnason flytja flygil inn á bifreiðaverkstæðið Highland Trucks á Smiðjuvegi 4a og spila þar einleikskonsert fyrir píanó. Hann hefur verið staðarhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, tónlistarstjóri Íslensku óperunnar og væflast um veröldina með Björk sem hljómsveitarstjóri en er nú listrænn stjórnandi hjá Bit20 hljómsveitinni í Bergen.
Stofnaði bara hátíð með strákunum
Eitthvað við þennan strákslega píanóleikara tendrar hughrif við bókartitil Charles Bukowski: Play the piano drunk like a percussion instrument until the fingers begin to bleed a bit.
Raunar á það við um hina aðstandendur hátíðarinnar líka og hátíðina sem slíka. Þeir tala eins og ólgandi djassspuni spurðir um hátíðina og Bjarni segir: „Við vorum upphaflega að tala um að skipuleggja einn eða tvo tónleika í litlum sal. Vorum með hugmyndir um [hljóðgervil] sem Maggi keypti. Að leiða saman ólíkt …
Athugasemdir