Litið fram hjá tilfinningalegum tengslum við uppbyggingu í miðborginni

Breytt ásýnd mið­borg­ar­innar blasir nú við í nágrenni við Aust­ur­völl. Innan um rót­grónar og sögu­frægar bygg­ingar, líkt og Alþingi og Dóm­kirkj­una, blasa við nýbygg­ingar og upp­gerð hús, svo sem skrif­stofur þing­flokka og hótel. Doktor í umhverf­is­sál­fræði segir skeyt­ing­ar­leysis gagn­vart sögu svæð­is­ins gæta í fram­kvæmdum í mið­borg­inni.

Litið fram hjá tilfinningalegum tengslum við uppbyggingu í miðborginni
Breytt ásýnd mið­borg­ar­innar Doktor í umhverf­is­sál­fræði segir skeyt­ing­ar­leysis gagn­vart sögu svæð­is­ins gæta í fram­kvæmdum í mið­borg­inni. Mynd: Golli

Ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar mynd­aði mið­borg­ina á sjald­séðum góð­viðr­is­degi í vik­unni. Á mynd­unum má sjá nokkuð nýja ásýnd við helstu kenni­leiti mið­borg­ar­innar. Innan um Dóm­kirkj­una og Alþing­is­húsið, bygg­ingar sem reistar voru á 18. og 19. öld, má nú sjá nýbygg­ingar í bland við upp­gerðar eldri bygg­ingar. Smiðja, ný skrif­stofu­bygg­ing Alþingis, var tekin í notkun í lok síð­asta árs og sitt sýn­ist hverjum. Smiðja hefur til dæmis ekki þótt nógu klass­ísk og þing­maður Flokks fólks­ins líkti skrif­stofu sinni við Litla-Hraun. Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, for­maður Afstöðu, félags fanga á Íslandi, var hins vegar stór­hrif­inn af bygg­ing­unni.

Að yfirstíga stóran framkvæmdahjalla

Stærð­ar­innar fram­kvæmdir hafa ein­kennt mið­borg­ina síð­ustu ár en nú virð­ist sem ákveðnum áfanga hafi verið náð í fram­kvæmdum í hjarta mið­borg­ar­innar. Nýja Lands­banka­húsið við hlið Hörpu er full­búið og hótel við Lækj­ar­götu og í gamla Land­síma­hús­inu við Aust­ur­völl hafa sömu­leiðis verið tekin í notkun.

Höf­uð­stöðvar Lands­bank­ansLands­bank­inn hefur tekið nýjar höf­uð­stöðvar í notkun við Aust­ur­höfn. Kostn­aður við húsið er 16,5 millj­arðar króna, um 8,5 millj­örðum hærri en reiknað var með í upp­hafi.

Páll Jakob Líndal, doktor í umhverf­is­sál­fræði, hefur meðal ann­ars skoðað sam­spil umhverfis og fólks og tengsl umhverfis við heilsu og vellíðan. Hann segir ekki hafa verið tekið til­lit til þess­ara þátta í stór­fram­kvæmdum í mið­borg­inni. „Það er kannski litið til þeirra í ein­hverju sam­hengi en það að þetta sé tekið og vegið með vís­inda­legum hætti og tekið alvar­lega, það er ekki partur af ferl­inu. Fólk veit að umhverfi hefur áhrif en við þurfum að vega þetta og meta og vinna með þetta sem vís­indi en ekki inn­sæi og mats­at­riði þröngs hóps. Þetta þarf þver­fag­legri og vís­inda­legri nálgun.“

DoktorPáll Jakob Líndal.

Gagnrýni Páls á upp­bygg­ingu í mið­borg­inni snýr einkum að tvennu; þétt­leika byggðar og stað­ar­venslum, það er til­finn­inga­legum tengslum ein­stak­lings við til­tek­inn stað. Páll segir ákveð­ins skeyt­ing­ar­leysis gæta þegar kemur að sögu svæð­is­ins og litið hafi verið fram hjá til­finn­inga­legum tengslum sem fólk hefur við mið­bæ­inn. „Þarna hefði ég viljað að staldrað væri lengur við, bæði vegna þess að ég sé að það eru tæki­færi til að byggja þennan gamla miðbæ upp á for­sendum sög­unnar, að byggja af virð­ingu við sög­una. Það hefur líka sýnt sig að hvers konar umhverfi sem ber ein­kenni gam­allar byggðar og hefur skírskotun í sög­una hefur mjög góð áhrif á okkur í sál­fræði­legu sam­hengi. Gott umhverfi er heilsu­fars­lega gott fyrir okkur. Það þarf að taka betur upp­lýstar ákvarð­anir með til­liti til þess­ara þátta.“ 

„Gott umhverfi er heilsu­fars­lega gott fyrir okkur.“
Páll Jakob Líndal
umhverf­is­sál­fræð­ingur

Til eru dæmi þar sem vel hefur tek­ist til að láta gömlu og nýju tím­ana ræt­ast og nefnir Páll bygg­ingar í Aðal­stræti og gatna­mót Hafn­ar­strætis og Tryggva­götu sem dæmi, þar sem upp­gerð eldri húsa hefur heppn­ast vel. Á heild­ina litið telur Páll að ekki hafi tek­ist vel til í þessum efnum.

Gamlir og nýir tímar mæt­ast„Straujárnið“ í Hafn­ar­stræti er vel lukkuð fram­kvæmd að mati umhverf­is­sál­fræð­ings.

„Hótelið við Land­síma­húsið er að mörgu leyti ágæt­lega heppnað, bygg­ing­ar­lega séð, og skapar og styrkir rammann við Aust­ur­völl en það voru deilur um kirkju­garð­inn og við getum velt því fyrir okkur hvort honum hafi verið sýnd nægj­an­leg virð­ing. Þetta er elsti kirkju­garður Reykja­víkur. Hefði ekki mátt vinna betur með það?“

„Besta horn bæjarins“

Sömu sögu er að segja með Smiðju, sem Páll segir vera á besta horni bæj­ar­ins, beint á móti suðri, í skjóli fyrir norð­an­átt­inni og alveg við Tjörnina. „Þetta er stór­kost­legt horn sem ekki er hægt að nota með svona stóru húsi, inn í þetta umhverfi, ofan á þessum mögu­legu forn­minjum sem þarna voru. Passar þetta inn í? Er þetta of stórt? Mér finnst það. Þetta svæði hefði mátt nýta betur í þágu almenn­ings og bæj­ar­lífs.“    

SmiðjaNý skrif­stofu­bygg­ing Alþingis er á „besta horni bæj­ar­ins“ segir Páll Jakob Líndal umhverf­is­sál­fræð­ingur, þegar litið er til ýmissa þátta, svo sem veð­ur­skil­yrða.

Páll vill sjá auk­inn fjöl­breyti­leika í borg­ar­um­hverf­inu. „Við þurfum ákveðin tengsl við nátt­úru í umhverfi okkar og við þurfum að lifa og dvelja í því sem við getum kallað mann­legan skala. Annars fer umhverfið að vinna á móti okkur, það fer að skap­ast óör­yggi og hræðslu­til­finn­ing sem hefur nei­kvæð áhrif á vel­ferð okkar og okkar dag­lega líf. Áhrif umhverfis á fólk rista miklu dýpra. Þetta skiptir okkur miklu meira máli af því við erum hluti af umhverf­inu. Við erum stans­laust að skynja umhverfi okkar og taka afstöðu til þess, með með­vit­uðum og ómeð­vit­uðum hætti. Allt hefur þetta áhrif á vel­ferð okkar, líðan okkar, til­finn­ingar og heilsu.“

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Sakna gamla miðbæjarins með gömlu fallegu húsunum. Þessu er öllu breytt til hins verra.
    0
  • FB
    Finnur Birgisson skrifaði
    Sakna þess að umhverfissálfræðingurinn skuli ekki tjá sig um Landsbankahúsið og Hafnartorg. En myndirnar eru fínar.
    5
    • Ásgeir Överby skrifaði
      Hann hefði líka mátt taka með Seðlabankann - eða tilheyrir hann fortíðinni?
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár