Samfélagið vill þennan ástarkraft – en þolir hann ekki

Sumir ljós­mynd­arar flækj­ast um mann­lífið og sjá það sem aðrir sjá ekki. Og fangar það til að sýna okkur hinum. Svo við fáum séð það. Alda Lóa Leifs­dóttir er þannig ljós­mynd­ari – sem fangar við­brögð íslenskra kvenna við þjóð­ar­morði í Palest­ínu.

Samfélagið vill þennan ástarkraft – en þolir hann ekki
Mist, Melkorka, Sigríður, Snúlla, Gunnlöð, Rowen Lilja, Tristan Raine og Maryam Hrund. Mynd: Alda Lóa Leifsdóttir

„Ég var bara allt í einu byrjuð á þessu,“ sagði Alda Lóa um þá reisu sína að byrja að fanga íslenskar konur sem höfðu fundið upp hjá sjálfri sér að berj­ast gegn þjóð­ar­morði í Palest­ínu. Henni fannst merki­legt að upp­götva í fyrstu mót­mæl­unum eftir 7. októ­ber síð­ast­lið­inn að það voru aðal­lega konur sem stóðu fyrir þeim og tóku þátt.

„Þetta stakk í augun og ég var svo hissa. Hvar eru karl­arnir?“ spurði Alda Lóa sjálfa sig og fannst þetta mjög áhuga­vert: „... þó að það séu líka margir góðir karlar þarna og strákar, ég ætla ekki að taka það frá þeim. En þessi bar­átta fyrir friði í Palest­ínu og bar­átta gegn þjóð­ar­morði hefur aðal­lega verið í höndum kvenna. Þær sem hafa rekið þetta áfram, af krafti sem er ein­stak­lega fagur,“ segir hún og síðan að henni þyki það vera algjör for­rétt­indi að hafa …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Guðmundsdóttir Motzfeldt skrifaði
    Takk Auður Jónsdóttir fyrir þessa tæru snilld.
    Við erum fámennar í íslenska hópnum í IWSP (International Women Support for Palestine) undir forystu Bjarkar Vilhelms. Okkur finnst samt við gera gagn við að lesa ólífur í lundum Vesturbakkans með bændum og búaliði og taka þátt í mótmælum á föstudögum🇵🇸🇵🇸🇵🇸
    0
  • Þórdís Þórðardóttir skrifaði
    Sterkar og fallegar myndir sem eiga erindi á stóra sýningu.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni