Mynd: Golli

Orðræðan bendir til þess að þjóðinni líði ekki vel

Halla Tóm­as­dóttir veit að hún fær ekki neina for­gjöf um traust hjá kjós­endum. Halla hefur enda alla tíð þurft að leggja hart að sér, komin af for­eldrum sem þurftu að rísa úr sárri fátækt og hefur upp­lifað að tapa öllu sínu. Hún hefur veru­legar áhyggjur af traust­leys­inu í sam­fé­lag­inu og segir blasa við að það þurfi kerf­is­breyt­ingar til að sigr­ast á þeim vanda. Þær breyt­ingar verði ekki inn­leiddar af einum for­seta sem þyk­ist hafa öll svörin heldur nýjan sam­fé­lags­sátt­mála.

Halla Tóm­as­dóttir sker sig úr þeim hópi sem sæk­ist eftir því að verða næsti for­seti Íslands. Hún gerir það vegna þess að hún er eini fram­bjóð­and­inn sem mælist með umtals­vert fylgi sem er að reyna að kom­ast á Bessa­staði í annað sinn. Hún bauð sig líka fram árið 2016 og end­aði þá önnur, með 27,9 pró­sent atkvæða, tæpum ell­efu pró­sentu­stigum á eftir sig­ur­veg­ar­anum, Guðna Th. Jóhann­essyni. 

Það er vart hægt að lýsa því fram­boði Höllu öðru­vísi en sem síg­andi lukku. Framan af bar­átt­unni mæld­ist hún með sára­lítið fylgi, klauf ekki tveggja tölu­stafa múr­inn fyrr en rúmri viku fyrir kosn­ing­arnar og end­aði svo með rúm­lega 50 pró­sent meira fylgi en hún mæld­ist með í síð­ustu könn­unum. 

Halla segir að þegar hún tók ákvörðun um að bjóða sig fram aftur þá hefði hún rætt við starfs­mann hjá fyr­ir­tæki sem fram­kvæmir skoð­ana­kann­anir, sem hafi sagt henni að ef takt­ur­inn hefði haldið …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ólöf Salmon skrifaði
    Við Íslendingar viljum betri framtíð fyrir afkomendur okkar. Halla Tómasdóttir ER sá frambjóðandi sem hefur bæði kraftinn og karakterinn til að móta þá framtíð MEÐ þjóðinni. Hún hefur ætíð brett upp ermar og látið verkin tala. Fallega sagan hennar sýnir okkur það svart á hvítu að hún stendur við það sem hún segir ❤ Kjósum með hjartanu og byggjum betra Ísland fyrir okkur öll ❤
    1
  • Elsa Þorbjörg Árnadóttir skrifaði
    Ráðgjafar Höllu Tómasdóttur sem forseta munu verða kapital landsins, treysti henni ekki.
    -1
    • Margrét Sólveig Ólafsdóttir skrifaði
      Hefur þú heyrt að hennar vinna hjá B team er fólgin í því að heimurinn setji sér markmið um að t.d. stórfyrirtæki og alþjóðafyrirtæki geti ekki ekki stundað skattasniðgöngu? B team er alþjóðleg samvinna um að betrumbæta heiminn fyrir næstu kynslóð, sem Höllu er mjög umhugað um.
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfsmönnum forsetaframboðsins laun: „Ég vil fá skýringar á því hvað þetta var“
InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
Ástþór þögull um fjármögnun á framboði Ásdísar: „Ég er langflottasti forsetinn“
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár