Þróttur ætlar ekki að gefa eftir svæði undir nýjan unglingaskóla í Laugardal

Það logar allt í Laug­ar­dalnum eftir U-beygju Reykja­vík­ur­borgar um fram­tíð skóla­mála í hverf­inu. Fallið hefur verið frá áformum um að stækka þrjá grunn­skóla og þess í stað á að byggja nýjan ung­linga­skóla í Dalnum. Á meðal þeirra lóða sem borgin skoðar að byggja á er lóð sem kall­ast „Þrí­hyrn­ing­ur­inn“ og Þróttur telur sig hafa full yfir­ráð. Félagið ætlar ekki að láta lóð­ina eftir.

Þróttur ætlar ekki að gefa eftir svæði undir nýjan unglingaskóla í Laugardal
Ný fram­tíð Þeir krakkar sem ganga þessa dag­anna í yngstu bekki Laug­ar­nes­skóla hafa hingað til vænst þess að fær­ast upp í Laug­ar­lækja­skóla þegar þeir verða ung­lingar. Nú hefur orðið breyt­ing á og þau munu að óbreyttu nema í nýjum ung­linga­safn­skóla í Laug­ar­dalnum. Mynd: Golli

Skóla- og frí­stunda­ráðs Reykja­vík­ur­borgar ákvað nýverið að að falla frá fyrri áformum um upp­bygg­ingu og við­hald á hús­næði grunn­skóla í Laug­ar­dalnum, en áformin höfðu verið sam­þykkt eftir ítar­legt sam­ráðs­ferli við hag­að­ila í hverf­inu. Sú sviðs­mynd gerði ráð fyrir því að reisa við­bygg­ingar og ráð­ast í við­halds­fram­kvæmdir við þrjá grunn­skóla: Laug­ar­nes­skóla, Lauga­lækj­ar­skóla og Lang­holts­skóla. 

Tveimur árum eftir að sam­ráð­inu lauk tók borgin hins vegar U-beygju í mál­inu og hefur nú sam­þykkt að reisa nýjan ung­linga­safn­skóla í Laug­ar­dalnum, sem muni þjón­usta nem­endur frá skóla­svæði sem nær yfir Laug­ar­nes­skóla, Lauga­lækja­skóla og Lang­holts­skóla, ásamt nem­endum sem búa á upp­bygg­ing­ar­reitum við Grens­ás­veg, á Orku­reitnum og í Skeif­unni. Þá var sömu­leiðis gert ráð fyrir því að skól­unum þremur verði breytt með þeim hætti að þeir yrðu allir barna­skólar fyrir nem­endur í 1. til 7. …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár