„Við göngum ekki í einhverju panikki um firðina“
Konurnar 16 „Þetta er nátt­úru­lega galin hug­mynd en okkur finnst þetta líka galið gaman,“ segir Kristín bros­andi. Mynd: Frank Nieuwenhuis

„Við göngum ekki í einhverju panikki um firðina“

Í frið­sælli nátt­úru Horn­stranda ganga 16 konur í björtum app­el­sínu­gulum stutt­erma­bolum „með bíó á bak­inu“. Þær eru hugsi yfir nei­kvæðri þróun í umhverf­is­málum og áhrifum manns­ins á móður nátt­úru. En samt brosa þær og hlæja, val­hoppa jafn­vel. Því þær eru að vinna í því að hafa áhrif.

Á göngu um Horn­strandir í júlí­mán­uði árið 2022 brá nokkrum konum í brún. Aðeins ári áður höfðu Hreinni Horn­strandir og Seigl­urnar fært rúm sex tonn af plasti úr þremur víkum á svæð­inu. Samt var í fjör­unum að finna feikn af marg­litu plasti sem mátti að nán­ast öllu leyti rekja til sjáv­ar­út­vegs. Þarna voru línur, græn­bláar neta­dræsur, gular og app­el­sínugular netakúlur úr þykku plasti.

„Við vorum bara að labba og njóta en þegar við litum niður vorum við bara að vaða plast,“ segir ein kvenn­anna – Bjarney Lúð­víks­dóttir kvik­mynda­gerð­ar­kona. „Þetta var svo á skjön við allt saman sem Horn­strandir standa fyrir að það var eig­in­lega alveg skelfi­legt.“

„Það blasti svo við hvað hafði gerst á bara einu ári,“ segir önnur kvenn­anna – Kristín Sig­urð­ar­dóttir slysa- og bráða­læknir. „Ég var undr­andi yfir van­hugsun og virð­ing­ar­leysi okkar Íslend­inga því þetta var íslenskt rusl.“

En í stað þess að halda áfram …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár