Fiðrildi með kulnun sem lærði að hlusta á líkamann

Kara Elvars­dóttir lýsir sjálfri sér sem fiðr­ildi og kvíða­kerl­ingu. Hún hefur alltaf átt erfitt með að segja nei við nýjum tæki­færum sem leiddi til þess að hún fór í kulnun. Veg­ferðin hefur hins vegar leitt hana á betri stað og í dag leiðir hún hóp kvenna sem hreyfa sig með­vitað. En hvað er með­vituð hreyf­ing?

Fiðrildi með kulnun sem lærði að hlusta á líkamann
Að treysta lík­am­anum Kara Elvars­dóttir, sjúkra­þjálf­ari og tveggja barna móðir, elskar að hreyfa sig, prjóna, baka og syngja ein í bílnum. En hún elskar líka að fræða fólk um lík­ama sinn og hjálpa konum að öðl­ast heil­brigt sam­band við hreyf­ingu. Mynd: Golli

Tvisvar í viku leiðir sjúkra­þjálf­ar­inn Kara Elvars­dóttir hóp kvenna í gegnum styrkt­ar­þjálfun undir yfir­skrift­inni Meðvituð hreyf­ing. Leið Köru að með­vit­aðri hreyf­ingu var hlykkj­ótt en hún fór í kulnun eftir að hafa verið í fullu námi í sjúkra­þjálfun, hreyft sig oft í viku, stundum oft á dag, eign­ast tvö börn og kennt ball­ett og aðra hreyf­ingu á fjórum mis­mun­andi stöðum. Líkaminn sagði á end­anum stopp. 

„Ég er svo­lítið mikið fiðr­ildi, ég helst illa í einni níu til fimm vinnu. Frá því að ég var í háskól­anum hef ég alltaf verið í milljón vinnum með, alltaf verið að fá ótrú­lega skemmti­leg tæki­færi sem ég get ekki sagt nei við. Ég hef líka brennt mig á því að hafa alltof mikið að gera,“ segir Kara. En hún leit á kuln­un­ina sem ákveðið tæki­færi til að end­ur­hugsa sam­band hennar við sjálfa sig, lík­amann og hreyf­ingu. 

Kara hefur stundað ein­hvers konar hreyf­ingu …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár