Niðurfelling á máli Alberts kærð og KSÍ krafið um afsökunarbeiðni

Lögmaður konu sem kærði lands­liðs­mann í fót­bolta fyrir nauðgun gagn­rýnir lands­liðs­þjálf­ara Íslands harka­lega fyrir að segja að það yrðu „von­brigði fyrir Ísland“ ef umbjóð­andi hennar myndi kæra nið­ur­fell­ingu á máli lands­liðs­manns­ins.

Niðurfelling á máli Alberts kærð og KSÍ krafið um afsökunarbeiðni
Albert Guð­munds­son Greint var frá því seint í síð­asta mán­uði að rann­sókn á mál­inu hefði verið felld niður hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara. Mynd: AFP


Nið­ur­fell­ing emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara á rann­sókn máls þar sem knatt­spyrnu­mað­ur­inn Albert Guð­munds­son er sak­aður um nauðgun hefur verið kærð til rík­is­sak­sókn­ara og óskað hefur verið eftir að nið­ur­fell­ingin sæti end­ur­skoðun. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem Eva B. Helga­dóttir, lög­maður kon­unnar sem kærði Albert, sendi til fjöl­miðla í dag. 

Þar segir að með kærunni vilji umbjóð­andi hennar leita rétt­lætis vegna þeirrar mis­beit­ingar sem hún varð fyrir. „Það er áréttað að það er aldrei auð­veld ákvörðun að stíga það skref að kæra mann fyrir kyn­ferð­is­brot og enn síður þegar mað­ur­inn er tengdur fjöl­skyld­unni ára­löngum vina­böndum.“

í til­kynn­ing­unni gagn­rýnir Eva líka Knatt­spyrnu­sam­band Íslands (KSÍ) harka­lega og segir að það skuldi umbjóð­anda hennar afsök­un­ar­beiðni. „Á löngum ferli sem lög­maður man ég ekki eftir við­líka ummælum og þeim sem lands­liðs­þjálf­ari karla­lands­liðs­ins lét falla á dög­unum um þetta við­kvæma mál. Lýsti hann því sem “von­brigðum fyrir Ísland” ef umbjóð­andi minn myndi kæra nið­ur­fell­ing­una. Með þessum ummælum virð­ist lands­liðs­þjálf­ar­inn egna þjóð­inni gegn umbjóð­anda mínum. Brota­þola, sem hefur ein­göngu leit­ast við að ná fram rétt­læti vegna mis­beit­ingu sem hún varð fyrir.“

Ummælin lét lands­liðs­þjálf­ar­inn, Åge Hareide, falla á blaða­manna­fundi sem haldin var í lok síð­ustu viku vegna vals á lands­liðs­hóps karla fyrir umspils­leik gegn Ísrael sem fer fram í þess­ari viku. Albert kom þá á ný inn í hóp­inn, en sam­kvæmt reglum KSÍ mega leik­menn sem eru til rann­sóknar vegna meintra lög­brota ekki vera valdir. Hareide var spurður hvað myndi ger­ast ef nið­ur­fell­ingin á máli Alberts yrði kærð og svar­aði því til, sam­kvæmt frétt Vísis, að hann vildi helst ekki hugsa út í þann mögu­leika. Reglur KSÍ væru þó skýrar og þeim fylgi hann. „Ég verð að fylgja þeim reglum. Það breytir því ekk­ert. Þetta yrðu von­brigði fyrir Ísland og Albert.“

Eva segir í til­kynn­ing­unni að hún telji þessi ummæli lands­liðs­þjálf­ar­ans ekki aðeins ósmekk­leg heldur einnig sið­ferði­lega ámæl­is­verð. „Um er að ræða lög­form­legt ferli með lög­boðna og fremur stutta fresti. Þeir liggja fyrir og eru öllum ljósir. Umbjóð­anda minn varðar að öðru leyti ekki nokkurn hlut um lands­liðið og það er ólíð­andi að ábyrgðin sé sett á hennar herðar af þjálf­ara og for­ystu KSÍ líkt og raun ber vitni. Und­an­farnir mán­uðir hafa verið umbjóð­anda mínum þung­bærir. Það er ekki aðeins ósmekk­legt að hún eigi líka að bera ábyrgð á því hvernig lands­lið­inu í fót­bolta reiðir af, heldur óboð­legt. Sýnir þetta við hvaða ofurefli er að etja ef lands­liðs­þjálf­arar ætla með þessum hætti að leggj­ast gegn því að brota­þolar leiti réttar síns.“

Það að setja mál sem þessi í lög­form­legt ferli séu nógu þung skref að stíga þótt brota­þolum sé ekki gert enn erf­ið­ara um vik með skeyta­send­ingum af þessu tagi frá for­kólfum íslensku knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar. „Ég tel að Knatt­spyrnu­sam­bandið skuldi umbjóð­anda mínum opin­bera afsök­un­ar­beiðni á ummæl­unum.“

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár