Ég teiknaði hyldýpi – en ég réði við það: Myndlist sem tæki til að skoða eigin huga og tilfinningar

Ágústa Odds­dóttir hlaut sér­staka við­ur­kenn­ingu á útgefnu efni um mynd­list þegar Íslensku mynd­list­ar­verð­launin voru afhent. Við­ur­kenn­ing­una hlaut hún fyrir bók­ina Art Can Heal, sem er um list­þerapíu og starf Sigríðar Björns­dóttur. Bókin er listi­legur gripur, bók­verk fremur en hefð­bundin bók, en hún kom út á ensku. En hver er Sigríður Björns­dóttir?

Ég teiknaði hyldýpi – en ég réði við það: Myndlist sem tæki til að skoða eigin huga og tilfinningar
Sigríður, Ágústa og Egill – að skegg­ræða yfir kaffi­sopa.

Sigríður þróaði sérstaka aðferð við að hjálpa veikum börnum á spít­ala við að tjá sig. Um líðan sína, til­finn­ingar og hugs­anir,“ segir Ágústa um Sigríði Björnsdóttur. En aftan á bókinni Art can heal (Listin getur heilað) má lesa þessi orð Ágústu: Þú setur til­finn­ingar í mynd­ina á meðan þú vinnur að henni, myndin sjálf er eins konar þerapisti sem býr inna með þér.

Þegar Sigríður útskrifaðist úr Mynd­lista- og hand­íðaskóla Íslands, árið 1952, fannst henni vanta svo mikið að veik og fötluð börn fengju að kynn­ast mynd­list.

„Svo hún fór í starfs­nám til London um sum­arið til að læra að vinna með veikum börnum á spít­ala. Þá sá hún hvað krakk­arnir …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár