Tuttugu forstjórastólar kostuðu tvo milljarða í fyrra

Laun for­stjóra stórra fyr­ir­tækja á Íslandi eru marg­falt hærri en laun flestra ann­arra á Íslandi. Það er rök­stutt með því að stör­f­unum fylgi mikil ábyrgð og það eigi að end­ur­spegl­ast í góðum launa­kjörum. Þrátt fyrir að virði margra félaga í Kauphöll hafi lækkað á síð­ustu tveimur árum hafa laun for­stjóra haldið áfram að hækka og nýjar leiðir til að bæta við þau hafa fallið til. Auk grunn­launa og greiðslna í líf­eyr­is­sjóð geta þau verið sam­an­sett úr árang­urstengdum greiðslum, kaupaukum, kaup­réttum og jafn­vel „keyptum starfs­rétt­indum“. Þá kost­uðu gullnar fall­hlífar fyrir brottrekna for­stjóra skráð félög í Kauphöll mörg hund­ruð millj­ónir króna á síð­asta ári.

Tuttugu forstjórastólar kostuðu tvo milljarða í fyrra

Árið 2023 var ekki gott á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði, heilt yfir. Fram í síð­ustu vik­una í nóv­em­ber leit út fyrir að það yrði afleitt. Um mið­bik þess mán­aðar hafði úrvals­vísi­talan, sem mælir gengi þeirra félaga í Kauphöll Íslands sem eru með mestan selj­an­leika, lækkað um rúm­lega 18 pró­sent á einu ári. Í maí­mán­uði einum saman lækk­aði úrvals­vísi­talan til að mynda meira innan eins mán­aðar en hún hafði gert í 14 ár. Þessi staða hafði mikil áhrif á sölu hlut­deild­ar­skír­teina hluta­bréfa­sjóða, en inn­lausnir úr þeim voru átta millj­örðum krónum umfram sölu á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. 

Það stefndi í „bjarn­ar­markað“ annað árið í röð, en slíkt er þegar verð á bréfum falla stöðugt yfir lengri tíma. Á árinu 2022 hafði heild­ar­vísi­tala Kaup­hall­ar­innar lækkað um heil 17 pró­sent. Þar á undan höfðu komið tvo „nauta­mark­aðsár“, sem fela í …

Kjósa
38
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Elsa Þorbjörg Árnadóttir skrifaði
    Þvílík dusilmenni....
    1
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Ótrúlegar tölur svo ekki sé meira sagt.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár