Þingmenn Sjálfstæðisflokks leggja fram fjölmiðlafrumvarp til höfuðs stefnu ráðherra

Þingmenn Sjálfstæðisflokks leggja fram fjölmiðlafrumvarp til höfuðs stefnu ráðherra

Níu þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks vilja gjör­breyta rekstri RÚV, gera mið­il­inn aftur að rík­is­stofnun og draga veru­lega úr umsvifum hans á aug­lýs­inga­mark­aði. Samhliða vilja þeir afnema styrkja­kerfi fyrir einka­rekna fjöl­miðla en inn­leiða skattaí­viln­anir sem munu fyrst og síð­ast auka stuðn­ing við stærstu einka­reknu fjöl­miðla lands­ins.

Níu þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa lagt fram frum­varp um breyt­ingu á ýmsum lögum vegna end­ur­skoð­unar á rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla. Um er að ræða alla þing­menn flokks­ins sem eru annað hvort ekki ráð­herrar eða for­seti Alþingis utan tveggja, þeirra Hildar Sverr­is­dóttur þing­flokks­for­manns og Bryn­dísar Har­alds­dóttur. 

Markmið frum­varps­ins er, að sögn þeirra sem standa að því, það að jafna sam­keppn­is­stöðu einka­rek­inna fjöl­miðla gagn­vart rík­is­reknu fjöl­miðla­fyr­ir­tæki, gera rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla heil­brigð­ara og að ein­falda rekstur og alla lagaum­gjörð í kringum RÚV. 

Ef frum­varpið yrði að lögum myndi íslenskt fjöl­miðlaum­hverfi gjör­breyt­ast. Starf­semi RÚV yrði allt önnur en hún er í dag og mögu­leikar þess til að sækja sér tekjur settar veru­legar skorður. Þá vilja þing­menn­irnir afnema alla styrki til einka­rek­inna fjöl­miðla en inn­leiða þess í stað skattaí­viln­anir sem myndu skila stærstu einka­reknu fjöl­miðlum lands­ins, jafnt frétta- sem afþrey­ing­ar­miðlum, skatta­af­sláttum sem yrðu mun hærri en þeir …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Enn stendur til að gera árás á lífskjör launafólks með tillögum um dulda skattahækkun

    Ég hef ekki lúslesið þessa grein og auðvitað ekki frum-varpið ef það er þá komið fram. En bara að það skuli eiga að mismuna fjölmiðlum eftir því hvort þeir eru íslenskir eða frá Evrópska efnahagssvæðinu stangast við EES samninginn og mun ekki geta orðið.

    Þá er algjörlega óeðlilegt að hin og þessi fyrirtæki skuli geta styrkt fjölmiðla eftir eigin hentisemi sem er hreint óeðli.

    Slík hugmynd er bara hugsun sem ætlast væri til að starfsfólk fyrirtækjanna eigi að greiða slíka styrki eftir geðþótta eiganda fyrirtækisins án þess að hafa nokkuð um það að segja.

    Þ.e.a.s. aukin launatengd gjöld án þess að þau hafi sérstök félagleg markmið og nóg er fyrir. Enn einu sinni vill svarta íhaldsliðið auka skattagreiðslur launafólks sem svona tillaga er auðvitað.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár