Afkoma Icelandair langt undir væntingum og bréfin hríðféllu

Afkoma Icelandair langt undir væntingum og bréfin hríðféllu

Icelandair Group skil­aði hagn­aði í fyrsta sinn í sex ár á síð­asta ári, en sá hagn­aður var tölu­vert undir því sem stefnt hafði verið að. Fimm árin áður hafði félagið tapað sam­tals 80 millj­örðum króna, fengið meiri rík­is­styrki en nokkuð annað fyr­ir­tæki á far­ald­urs­tímum, farið í gegnum tvær hluta­fjár­aukn­ingar sem þynntu niður fyrri hlut­hafa og staðið í ill­vígum deilum við starfs­fólk um að lækka laun þeirra og auka vinnu­á­lag.

Icelandair Group birti afkomu­við­vörun þann 13. sept­em­ber í fyrra. Hún byggði á stjórn­enda­upp­gjöri á tveimur stærstu mán­uðum árs­ins hjá félag­inu, júlí og ágúst. Þrátt fyrir mik­inn vöxt í far­þega­flugi hafði elds­neyt­is­verð hækkað um tæp­lega 30 pró­sent frá miðju ári 2023 og frakt­starf­semi Icelandair hafði reynst „mjög krefj­andi“. Fyrir vikið myndi rekstr­ar­hagn­aður Icelandair verða minni en áætlað var, eða 50 til 65 millj­ónir Banda­ríkja­dalir, sem eru 6,9 til 8,9 millj­arðar króna á gengi dags­ins í dag. „Áfram er gert ráð fyrir hagn­aði af rekstri félags­ins eftir fjár­magnsliði og skatta fyrir árið í heild,“ sagði í til­kynn­ing­unni. 

Síðan gerð­ist margt. Grinda­vík var rýmd vegna jarð­hrær­inga á Reykja­nesi, vin­sælasta ferða­manna­stað Íslands Bláa lón­inu var lokað vegna sömu aðstæðna og fréttir fóru um allan heim um það sem væri að ger­ast á Íslandi án þess að það væri sér­stak­lega til­tekið að um afmarkað svæði væri að ræða. Síðan komu tvö eld­gos, annað í des­em­ber og það næsta í jan­úar. Búist er við þriðja gos­inu á þessu svæði bráð­lega. Þrjú eld­gos á þremur mán­uðum. Ofan í þetta fóru flug­um­ferð­ar­stjórar í verk­fall. 

Á end­anum náði Icelandair ekki einu sinni hinu nið­ur­færða mark­miði um rekstr­ar­hagnað. Hann reynd­ist á end­anum langt undir upp­runa­legu mark­miði vegna árs­ins 2023, sem gerðu ráð fyrir rekstr­ar­hagn­aði upp á 4 til 6 pró­sent af heild­ar­tekjum. Hann reynd­ist líka langt undir því mark­miði sem kynnt var með afkomu­við­vör­un­inni í sept­em­ber, sem gerði ráð fyrir að rekstr­ar­hagn­aður yrði 3,3 til 4,3 pró­sent af rekstr­ar­tekjum. Í enda dags reynd­ist rekstr­ar­hagn­að­ur­inn litlu meiri en árið 2022, og 1,4 pró­sent af rekstr­ar­tekjum. Rekstr­ar­hagn­að­ur­inn varð á end­anum ekki nema 21 milljón Banda­ríkja­dalir, 2,9 millj­arðar króna hjá sam­stæðu sem velti 1.524 millj­ónum Banda­ríkja­dala á árinu 2023, um 209 millj­örðum króna.  

Við­brögðin á hluta­bréfa­mark­aði létu ekki á sér standa. Virði bréfa í Icelandair hríð­féllu um níu pró­sent dag­inn eftir að árs­upp­gjörið var kynnt. Fjár­festar áttu von á meiru eftir næst besta ferða­mannaár í Íslands­sög­unni.

Hagnaðurinn dropi í taphafið

Margt var sann­ar­lega jákvætt. Fjöldi far­þega á árinu 2023 var 4,3 millj­ónir, sem var aukn­ing um 17 pró­sent milli ára. Þorri þeirra eru svo­kall­aðir transit-far­þegar, sem fljúga með Icelandair frá Norður-Ameríku til Evrópu, eða öfugt, með milli­lend­ingu á Kefla­vík­ur­flug­velli þar sem flestir fara ekki út af flug­vell­inum. Tekjur juk­ust mikið milli ára, alls um 20 pró­sent. Og Icelandair skil­aði hagn­aði eftir skatta og önnur gjöld í fyrsta sinn í sex ár. Sá hagn­aður var alls 11,1 millj­ónir Banda­ríkja­dala, um 1,5 millj­arðar króna. 

Þegar sá hagn­aður er settur í sam­hengi við það tap sem verið hefur á rekstri Icelandair fimm árin á undan, sem var upp­safnað um 80 millj­arðar króna, þá er sú upp­hæð þó ansi rýr. Þá ber að nefna að ekk­ert eitt fyr­ir­tæki á Íslandi fékk meiri rík­is­stuðn­ing á meðan að á kór­ónu­veiru­far­aldr­inum stóð en Icelandair. Auk þess fór félagið í tvær hluta­fjár­aukn­ingar eftir að sá far­aldur skall á, sem þynnti út fyrri hlut­hafa, þeirra mest íslenska líf­eyr­is­sjóði. Icelandair safn­aði alls 23 millj­­örðum króna í útboði sem fór fram í sept­­em­ber 2020 og gerði svo bind­andi sam­komu­lag við banda­ríska fjár­­­fest­ing­­ar­­sjóð­inn Bain Capital um að hann keypti nýtt hlutafé í flug­­­fé­lag­inu sum­arið 2021. Sam­­kvæmt sam­komu­lag­inu greiddi Bain Capital 8,1 millj­­arð króna og eign­að­ist fyrir vikið 16,6 pró­­sent hlut í Icelandair.

Auk þess átti Icelandair í fyr­ir­ferða­miklum vinnu­mark­aðserjum við lyk­il­stéttir til að lækka laun þeirra og auka vinnu­fram­lag.

Stundvís og stórt skattspor

Í til­kynn­ingu vegna árs­upp­gjörs­ins er haft eftir Boga að það væri mik­il­vægur áfangi að skila hagn­aði eftir skatta fyrir árið í heild. Þá hafi stund­vísi yfir árið sú besta hjá félag­inu í mörg ár. „Eftir einn besta þriðja árs­fjórð­ung í sögu félags­ins byrj­aði fjórði árs­fjórð­ungur vel. Hins vegar þegar jarð­hrær­ing­arnar á Reykja­nesi hófust á ný snemma í nóv­em­ber með til­heyr­andi umfjöllun í erlendum fjöl­miðlum, fór eft­ir­spurn að veikj­ast og þar með tekju­myndun. Við þetta bætt­ust áhrif verk­falla flug­um­ferð­ar­stjóra og svo eld­gos í des­em­ber. Jafn­framt hefur mikil fram­boðs­aukn­ing verið á lyk­il­mörk­uðum sem setur óhjá­kvæmi­lega pressu á ein­inga­tekjur. Afkoma fjórða árs­fjórð­ungs var því undir vænt­ingum og hafði áhrif á rekstr­ar­nið­ur­stöðu árs­ins.“

Þrátt fyrir að afkoma Icelandair hefði verið langt undir vænt­ingum sagði Bogi Níls að flug og ferða­þjón­usta skipti miklu máli fyrir íslenskt efna­hags­líf og sam­fé­lag. „Framlag Icelandair til þjóð­ar­bús­ins í formi skattspors félags­ins var 55 millj­arðar á árinu 2023 og ferða­þjón­ustan vegur þungt í útflutn­ings­tekjum þjóð­ar­innar. Það er því lyk­il­at­riði að tryggja sam­keppn­is­hæfni þess­ara greina til fram­tíðar. Mik­il­vægur hluti af því er að kjara­samn­ingar verði far­sæl­lega leiddir til lykta og við náum í sam­ein­ingu tökum á verð­bólg­unni hér á landi.“

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorsteinn V. Sigurðsson skrifaði
    Eitthvað að þarna, kannski mætti skipta út stjórn og forstjóra?
    0
  • Dagur Jonsson skrifaði
    Nú koma aðilar með hit-pieces til að valda Icelandair eins miklu tjóni á hlutabréfamarkaði eins og mögulegt er. Reynt er að gera eins lítið úr þeim áhrifum sem jarðhræringar og erlend umfjöllun hafði á ferðaþjónustuna og þar sem rekstur Icelandair á 4 ársfjórðung. Ég er nokkuð viss um að öll ferðafyrirtæki voru í vondum málum eða með tapi í Nóvember og Desember líkt og Icelandair. Lítið er talað um að ef allt hafði verið eðlilegt þessa tvo seinustu mánuði ársins að þá hafði hagnaður Icelandair verið með ágætum. Icelandair er alls ekki fullkomið fyrirtæki en það er mikilvægt fyrirtæki fyrir okkur landsmenn og ferðaþjónustuna og því á það skilið sanngjarna umfjöllun þar sem bent er á að sumt geta menn ekki haft áhrif á , eitt er náttúran sem er óvægin þessa stundina.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár