Ungmenni stofna bankareikninga án vitneskju foreldra sinna

Ungmenni stofna bankareikninga án vitneskju foreldra sinna

Ungmenni á aldr­inum 13 til 18 ára geta hæg­lega stofnað debet­korta­reik­in­ing án vit­undar for­eldra eða for­ráða­manna sinna. Fram­farir í fjár­tækni og not­enda­vænni banka­þjón­ustu hafa leitt til þess að börn geta stofnað reikn­ing sem for­eldrar hafa enga vit­neskju um. Börn sem hafa fengið raf­ræn skil­ríki geta á örskots­stundu stofnað debet­korta­reikn­ing á vin­sælum smá­forritum á borð við Aur. Með slíkum reikn­ingum geta ung­menni tekið við og miðlað greiðlsum án eft­ir­lits.

Heim­ild­inni hafa borist ábend­ingar um það að börn og ung­menni geti nú til­tölu­lega auð­veld­lega stofnað debet­korta­reikn­inga án þess að for­eldrar eða for­ráða­menn viti nokkuð um það. Með slíkum reikn­ingum geta ung­menni tekið við og miðlað greiðslum án þess að for­eldri eða for­ráða­maður viti nokkuð um slík við­skipti.

Í þessu sam­hengi hefur Aur-appið, sem er vin­sælt meðal ung­menna, vakið sér­staka athygli, en fjár­tækni­fyr­ir­tækið kynnti fyrir skömmu til sög­unnar nýja banka­þjón­ustu sem er aðgengi­leg í smá­forrit­inu. Þar geta not­endur 13 ára og eldri stofna debet­korta­reikn­ing, svo­kall­aðan Aur-Núll reikn­ing. 

Greiðslu­miðl­un­ar­þjón­usta Aurs hefur verið ein­stak­lega vin­sæl í gegnum tíð­ina, sér­stak­leg meðal ungs fólks. Þegar nýja banka­þjón­usta Aurs var kynnt á vef Kviku var sagt frá því að virkir not­endur væru orðnir 125 þús­und tals­ins.

Skoðanaaðgangur væntanlegur 

Í svari við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar segir Sverrir Hreið­ars­son, for­stöðu­maður fjár­tækni hjá Kviku banka, að líkt öðrum fjár­mála­stofn­unum hafi Kvika ákveðið „í sam­ræmi við gild­andi lög­ræð­is­lög, að miða stofnun sparn­aðar- og veltu­reikn­inga fyrir sjálfsaflafé hjá Aur og Auði við 13 ára aldur, að því gefnu að við­skipta­vin­ur­inn sé með raf­ræn skil­ríki, sem lög­ráða­menn hafa þegar sam­þykkt.“ 

Þá telur Sverrir mik­il­vægt að því sé haldið til haga að ófjár­ráða ein­stak­lingar geta ekki stundað við­skipti sem feli í sér skuld­bind­ingar eða kostnað. Þá geta lög­ráða­menn fengið skoð­un­ar­að­gang að reikn­ingum í Auði „og slíkur aðgangur er einnig vænt­an­legur hjá Aur,“ segir Sverrir. Þar að auki geta lög­ráða­menn óskað eftir reikn­is­yf­ir­liti hjá þjón­ustu­veri Aurs sem berst með raf­rænum hætti innan sól­ar­hrings á virkum dögum.  

Af svörum Sverris má ráða að við núver­andi aðstæður geta börn stofnað debet­korta­reikn­ing án þess að for­eldrar fái nokk­urs konar meld­ingum um það. Þá liggur fyrir að ef for­eldri veit ekki af til­vist banka­reikn­ings­ins geti ung­menni undir 18 ára aldri tekið við og miðlað greiðslum í full­komnu eft­ir­lits­leysið.

Þetta virð­ast for­svars­menn Aurs gera sér grein fyrir því í svari Sverris kemur fram að jafn­vel þótt „ekki sé gerð krafa um það að lögum þá höfum við til skoð­unar að stuðla að auk­inni yfir­sýn lög­ráða­manna með því að til­kynna þeim þegar ófjár­ráða ein­stak­lingar á þeirra vegum stofna debet­reikn­inga hjá Aur.“

Saga Aurs

Aur var stofnað árið 2015 og var í meiri­hluta­eigu fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins Nova. Fyr­ir­tækið bauð í fyrstu upp á ein­falda og fljót­lega leið til þess að milli­færa pen­inga með því einu að nota síma­númer. Fyr­ir­tækið varð fljótt vin­sælt á meðal íslenskra neyt­enda. Árið 2021 voru virkir not­endur þess voru um 90 þús­und tals­ins. 

Sama ár keypti Kvika banki allt hlutafé Aurs fyrir 458 millj­ónir króna og í kjöl­farið hóf fyr­ir­tækið að vinna að því að þróa og útvíkka þjón­ust­una. Með kaup­unum fylgdi fram­kvæmda­stjóri Aurs, Sverrir Hreið­ars­son, sem starfar nú sem for­stöðu­maður fjár­tækni hjá Kviku banka. Nú eru not­endur Aurs orðnir um 125 þús­und tals­ins.

Í nóv­em­ber 2023 hóf Aur að bjóða upp debet­korta­reikn­inga. Í til­kynn­ingu bank­ans er sagt frá metn­að­ar­fullum fram­tíð­ar­á­formum Aurs um að breyta fjár­mála­mark­aðnum og auka sam­keppni. Þar var sagt að debet­korta­reikn­ing­ur­inn, Aur Núll, sé með þeim hag­stæð­ustu sem völ er á. 

Debet­reikn­ingur Aurs eru með 4 pró­sent vöxtum sem greiddir eru mán­að­ar­lega. Þá greiða kort­hafar ekk­ert stofn­gjald, árgjald, né færslu­gjöld og fá 2,6 pró­sent end­ur­greiðslu af erlendum greiðslum. Að auki fá kort­hafar Aurs debet­korts­ins 10 pró­sent end­ur­greiðslu ef verslað er við fyr­ir­tæki sem eru í sam­starfi við Aur.  

Það er til­tölu­lega fljót­legt og auð­velt að stofna debet­korta­reikn­ing í Aur app­inu og það þarf ein­ungis auð­kenna sig með raf­rænum skil­ríkjum. Samkvæmt upp­lýs­ingum á heima­síðu Aurs þurfa ein­stak­lingar að hafa náð 13 ára aldri til þess geta stofnað Aur Núll reikn­ing.

Fjártækni, samfélagsmiðlar og ungmenni

Greitt aðgengi ung­menna að raf­rænum greiðslu­lausnum getur leitt af sér ýmis vanda­mál. Í bland við mikla sam­fé­lags­miðla­notkun geta börn hæg­lega geti komið sér vara­samar aðstæður.

Und­an­farin ár hafa þó nokkur mál ratað í fjöl­miðla þar sem greint er frá atvikum þar sem börn sem hafa átt í vafasömum við­skiptum við ein­stak­linga sem þau kynnt­ust í gegnum sam­fé­lags­miðla. Í slíkum málum hafa fjár­tækni­for­rit á borð við Aur og Kass komið við sögu. 

Í þætti Kveiks, sem sýndur var í Rík­is­út­varp­inu októ­ber 2021, var vakin athygli á þessum við­skiptum. Farið var yfir nokkur mál þar sem stúlkur á grunn­skóla­aldri seldu myndir af sér til ókunn­ugra ein­stak­linga sem þær kynnt­ust í gegnum sam­fé­lags­miðla. Í þessum málum fengu stúlk­urnar greitt var fyrir myndefnið í gegnum Aur-appið. 

Í umfjöll­un­inni kom fram að for­eldrar stúlkn­anna hafi kom­ist að þessum við­skiptum eftir að hafa fengið meld­ingu um milli­færslur inná banka­reikn­ing þeirra, sem for­eldr­arnir hafa aðgang að. 

Í sam­tali við Heim­ild­ina seg­ist Ævar Pálmi Pálmason, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn í kyn­ferð­is­brota­deild lög­reglu, kann­ast vel við þessi mál. „Já þetta app hefur alveg ratað inn á borð hjá okkur,“ segir Ævar. 

Þegar blaða­maður hóf að ræða um nýju debet­korta­þjón­ustu Aurs, og áhætt­una sem hún gæti skapað við­ur­kenndi Ævar að hann kann­að­ist ekki við upp­færsl­una. En sagði að ef svo væri að börn gætu stofnað reikn­ing án vit­neskju for­eldri væri það sér­stakt áhyggju­efni.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár