Þeirra er valið Ayah Albdawi, Zahra Hussaini og Zahra Mesbah taka það skýrt fram að það sé þeirra val hvort þær beri höf­uð­slæðu eður ei. Hún er hluti af menn­ingu þeirra.

„Ég get ekki hent hluta af menningu minni í burtu“

Þrjár múslim­skar konur sem hafa búið hér á landi árum saman og tala reiprenn­andi íslensku hafa ítrekað lent í for­dómum vegna trúar sinnar, húð­litar og þess að bera höf­uð­slæðu. Slæðan er hluti af þeirra menn­ingu og þær velja sjálfar hvort þær vilji bera hana eða ekki. Tvær þeirra hafa áhyggjur af því að ras­ismi sé að fær­ast í auk­ana.

Þegar Zahra Mesbah, íslenskur rík­is­borg­ari sem kom hingað sem kvótaflótta­kona frá Afganistan fyrir 11 árum síðan, les nei­kvæðar athuga­semdir um inn­flytj­endur, flótta­fólk og hæl­is­leit­endur á sam­fé­lags­miðlum finnur hún til dep­urðar. Hún veit hvernig það er að koma til óþekkts lands, þurfa að læra nýtt tungu­mál frá grunni, reyna að eign­ast nýja vini og mæta augn­gotum fólks sem er ekki vant að sjá konur með höf­uð­slæður. 

„Ég er íslensk og mig langar að segja eitt­hvað en ég þori því ekki því ég er hrædd við að fólk ráð­ist að mér, segi mér að ég sé múslimi og eigi að fara burt,“ segir Zahra um athuga­semdir á sam­fé­lags­miðlum. „Ég hugsa um það í heilan dag en þori ekki að segja neitt.“

Nei­kvæðar athuga­semdir um flótta­fólk og hæl­is­leit­endur sem hrönn­uð­ust inn við færslu utan­rík­is­ráð­herra um flótta­menn í síð­ustu viku urðu henni ekki til bjart­sýni. Hún sér for­dóma víðar nú en …

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Magnus Magnusson skrifaði
    Ömurlegur þessi ruglingur, andstaða við ákveðin trúarbrögð hefur ekkert með rasa eða rasisma að gera. T.d. hef ég mikla andstyggð á allri guðstrú og trúarbrögðum hvaðan sem fólkið kemur eða lítur út og hvar sem það hefur ánetjast þeim. Sama gildir t.d. um eiturlyfja notendur og sala eða hvers kyns aðra glæpamenn.
    -1
  • Siggi Olafsson skrifaði
    takk fyrir þessa mikilvægu og góðu grein.
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár