Dropinn dýr­ari Frá og með næstu ára­mótum á að taka upp kíló­metra­gjald fyrir bens­ín­bíla líka, líkt og hrein­orku­bílar þurfa nú að greiða. Þá á með­al­bíll að greiða um sjö þús­und krónur á mán­uði í slíkt gjald en á móti falla bens­ín­gjöldin niður. Áfram verður þó lagt kolefn­is­gjald á þá bíla sem menga. Mynd: Golli

Bensínverð hækkaði vegna aukinnar álagningar ríkissjóðs

Þær hækk­anir sem urðu á gjöldum sem rík­is­sjóður rukkar eig­endur bens­ín­bíla eru und­ir­staðan í þeirri hækkun á lítra­verði sem varð milli mán­aða. Álagning olíu­fé­laga hækkar líka en verðið sem þau greiða eina birgja sínum hefur hins vegar farið lækk­andi.


Bens­ín­verð hækk­aði um 3,2 krónur frá miðjum des­em­ber­mán­uði og fram á miðjan þennan mánuð og við­mið­un­ar­verðið þá var 313,10 krónur á hvern seldan lítra. Stærsta ástæða þess er sú að sá hlutur sem fellur íslenska rík­inu í skaut vegna ýmissa gjalda hækk­aði umtals­vert um síð­ustu ára­mót. Fyrir vikið fer 160,3 krónur af hverjum seldum lítra í rík­is­sjóð, eða 51,2 pró­sent. Ríkið hefur aldrei tekið jafn­margar krónur í sinn hlut af hverjum seldum bens­ín­lítra, sam­kvæmt útreikn­ingum Bens­ín­vaktar Heim­ild­ar­innar.

Við­mið­un­ar­verðið miðar við næst­lægstu verð­tölu hverju sinni til að forð­ast áhrif tíma­bund­innar verð­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­ar­verðið er þó með lægsta verði og sýnir þar með lægri hlut olíu­fé­lags­ins en reikna má með að raunin sé með­al­talið af öllu seldu bens­íni á land­inu.

Hlutur rík­­­­­­­is­ins í hverjum seldum bens­ín­lítra sam­anstendur af virð­is­auka­skatti, almennu og sér­­­­­­­­­­­­­stöku bens­ín­gjaldi og kolefn­is­gjaldi. Alls er virð­is­auka­hlut­fallið sem leggst á bens­ín­lítr­ann 19,35 pró­sent, almenna bens­ín­gjaldið hækk­aði úr 32,6 …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SFG
    Sveinn Flóki Guðmundsson skrifaði
    Ánægjulegt að sjá ykkur halda áfram að uppfæra og fjałla um þessa verðrýni á eldsneyti á Íslandi. Mjög fróðlegt að virða fyrir sér skiptinguna svona sjónrænt.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár