Bíða fregna af andláti ástvina í tjaldi

Palest­ínu­menn dvelja nú í tjöldum and­spænis Alþingi og hvetja stjórn­völd til að bregð­ast við kröfum þeirra um land­vist og fjöl­skyldu­sam­ein­ingu. Blaða­maður gisti með þeim fimmt­ándu nótt­ina þar, í and­rúms­lofti mett­uðu af hlýju og sorg, og heyrði sögur nokk­urra. Þeir sungu og syrgðu saman, eftir að hafa boðið upp á hægeld­aðan kjúkling með hrís­grjónum og hnetum – svo í tjaldið dreif að fólk upp­runnið frá Palest­ínu og Íslandi.

Bíða fregna af andláti ástvina í tjaldi
Fallegt sam­fé­lag. Tjaldið er ekki ein­ungis staður til að mót­mæla heldur nýtur fólk þar næveru hvers ann­ars. Ein­hverjir sem þarna dvelja eiga hér fjöl­skyldu og heim­ili. Þetta kvöld komu eig­in­konur og börn sumra, ásamt vinum og velunn­urum. Fólk snæddi saman í tjald­inu og þar mátti skynja fal­legt sam­fé­lag. Fyrir miðri mynd eru systk­inin Suleiman Al Masri og systur hans Asil sem Heim­ildin hefur tölu­vert fjallað um og bæði hafa fengið íslenskan rík­is­borg­ara­rétt. Þau misstu for­eldra sína í loft­árás Ísra­els­hers, þar sem hún missti einnig fót­legg. Mynd: Golli

„Ég veit ekki hvað ég get sagt við hann, það er ekk­ert hægt að segja, hann er búinn að missa allt. Nema sýna að hér er sam­líðan,“ segir ungur maður sem yljar sér við hitara og á þá við Ahmad Almamlok sem situr þög­ull afsíðis en hann missti fjöl­skyldu sína þann 7. des­em­ber síð­ast­lið­inn.

Með aðstoð túlks seg­ist Ahmad hafa reynt að hafa sam­band við Rauða kross Íslands til að flytja fjöl­skyld­una frá norð­ur­hluta Gasa til suð­ur­hluta Gasa. „Það gerð­ist ekki,“ segir hann. „Enginn gat hjálpað þeim.“

Húsið splundrað­ist í spreng­ingu.

Börn Ahmadssem lét­ust öll.

Asmaa, eig­in­kona hans, fórst ásamt börn­unum: Alaa sem var þrettán ára, hinum ell­efu ára Mohammed og Yahya, sem var tíu ára. Þar var einnig hin níu ára gamla Nada sem lifði árás­ina af, hel­særð, en lést þremur dögum síðar. …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár