Segir erfiðast þegar barn gleymdist í rútu og leikskólamálin helsta eftirsjáin

Segir erfiðast þegar barn gleymdist í rútu og leikskólamálin helsta eftirsjáin

Dagur B. Egg­erts­son sér eftir að hafa ekki getað staðið við lof­orð um fjölda leik­skóla­plássa fyrir börn í Reykja­vík. Fjöldi barna hefði ein­fald­lega verið van­met­inn við áætl­un­ar­gerð.

Dagur B. Egg­erts­son segir að erf­ið­asta mál sem hann hafi þurft að takast á við sem borg­ar­stjóri teng­ist því þegar verið var að byrja með ferða­þjón­ustu fatl­aðs fólks í Reykja­vík og bíl­stjóri gleymdi barni í bílnum. „Sem betur fer fór það vel en ég man ekki eftir að hafa liðið jafnilla yfir nokkru ein­stöku til­viki eins og því að geta ekki treyst því að koma börnum til skila með ferða­þjón­ustu. Ég hafði vonda til­finn­ingu lengi á eftir ein­hvern veg­inn af því að auð­vitað er verið að veita þessa þjón­ustu á hverjum ein­asta degi úti um allt. Það var veru­lega erfitt mál og erfið til­finn­ing.“

Umrætt atvik átti sér stað haustið 2019. Þá gleymd­ist sex ára drengur með ein­hverfu í rúm­lega þrjá klukku­tíma í rútu sem notuð var til að …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sjá meira

Viðtal

Skilur eftir sig áhuga­verð­ari borg og hræð­ist ekki dóm sög­unnar

Dagur B. Egg­erts­son er að hætta sem borg­ar­stjóri. Hann ætlar ekki að bjóða sig aftur fram í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, ætlar heldur ekki í for­seta­fram­boð en úti­lokar ekki að færa sig yfir í lands­málin. Dagur er stoltur af því sem hann hefur áorkað sem borg­ar­stjóri, stoltur af þeirri borg sem hann skilur eftir sig og sann­færður um að dómur sög­unnar á þeim ára­tug sem hann stýrði henni eigi eftir að vera góður.

18 mín. lestur

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorsteinn V. Sigurðsson skrifaði
    Og þetta lið á fullu ofurkaupi og kann ekki að reikna
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár