Konur bera þungann af samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs
Jafn­rétti Konur bera meiri þunga en karlar af vinnu­á­lagi vegna heim­il­is­starfa og barna­upp­eldis; annarri og þriðju vakt­inni, sam­kvæmt nið­ur­stöðum nýrrar könn­unar um sam­ræm­ingu fjöl­skyldu- og atvinnu­lífs. Mynd: Golli

Konur bera þungann af samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs

Konur draga frekar úr laun­aðri vinnu en karlar til að sinna ólaun­uðum störfum innan veggja heim­il­is­ins. Konur lengja sömu­leiðis frekar fæð­ing­ar­or­lof og bera mun meiri ábyrgð á sam­skiptum við skóla barna. Átta pró­sent karla hafa aldrei áhyggjur af verk­efnum heim­il­is­ins og umönnun barna.

Konur eru frekar í hluta­starfi en karlar, bera meiri ábyrgð á umönnun barna eftir að fæð­ing­ar­or­lofi lýkur, sjá frekar um sam­skipti við skóla og frí­stund og hafa frekar áhyggjur af verk­efnum heim­il­is­ins og umönnun barna þegar þær eru í vinn­unni. Þá hafa konur í meira mæli en karlar valið sér starfs­vett­vang til þess að auð­velda sam­ræm­ingu fjöl­skyldu- og atvinnu­lífs. 

Þetta er meðal þess sem fram kemur í könnun Vörðu, rann­sókna­stofn­unar vinnu­mark­að­ar­ins, um sam­ræm­ingu fjöl­skyldu- og atvinnu­lífs. Þrátt fyrir eina mestu atvinnu­þátt­töku íslenskra kvenna í heim­inum, og að Ísland skorar mjög hátt í alþjóð­legum sam­an­burði á jafn­rétti kynj­anna, draga konur frekar úr laun­aðri vinnu en karlar. Konur bera sömu­leiðis enn þá meiri þunga af vinnu­á­lagi vegna heim­il­is­starfa og barna­upp­eldis; annarri og þriðju vakt­inni. 

Nær allir feður í fullu starfi

Nið­ur­stöð­urnar byggja á spurn­inga­könnun meðal for­eldra barna á aldr­inum 12 mán­aða til 12 ára. Þar kemur m.a. fram …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár