Kennitala „Mér var til­kynnt af nýjum yfir­manni að nú værum við ekki nöfn heldur værum við kenni­tölur. Þetta væri svo umfangs­mikið fyr­ir­tæki að við værum bara kenni­tölur,“ segir Ríta Kristín. Mynd: Heiða Helgadóttir

Veikar flugfreyjur „kennitölur á blaði“ hjá Icelandair

Fyrr­ver­andi flug­freyjur hjá Icelandair gagn­rýna félagið fyrir að hafa ekki tekið á veik­indum þeirra í flugi með við­eig­andi hætti. Rannsókn á veik­ind­unum, sem hafa gert sumar kvenn­anna óvinnu­færar, hefur dreg­ist á lang­inn og er hún ekki í for­gangi hjá rann­sókn­ar­nefnd sam­gönguslysa.

Ríta Kristín Ásmunds­dóttir, fyrr­ver­andi flug­freyja hjá Icelandair, seg­ist ítrekað hafa veikst alvar­lega við störf sín fyrir félagið. Veik­indin teygja sig yfir um ára­tug og urðu að lokum svo slæm að Ríta fór í veik­inda­leyfi sem hún sneri ekki aftur til starfa úr.

Mál Rítu er eitt af nokkrum veik­inda­málum áhafn­ar­með­lima Icelandair – nokk­urra flug­freyja, eins flug­þjóns og eins flug­manns – sem er undir í þema­rann­sókn rann­sókn­ar­nefndar sam­gönguslysa (RNSA).

Málin í þeirri rann­sókn teygja sig frá árinu 2011 og fram til árs­ins 2020. Lokadrög þema­rann­sókn­ar­innar voru send til umsagnar í jan­úar árið 2022 en málið var fært aftur í rann­sókn ári síðar vegna veru­legs magns af óskil­greindum „við­bót­ar­upp­lýs­ingum“ sem bár­ust nefnd­inni, meðal ann­ars frá Icelandair og flug­véla­fram­leið­and­anum Boeing. Málið er því enn á rann­sókn­ar­stigi og er ekki í for­gangi, að sögn Ragnars Guð­munds­sonar – rann­sak­anda á flug­sviði RNSA. Rann­sóknir á banaslysum sem áttu sér stað í fyrra og á …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár