Mynd: Samsett / Heimildin

Bankarnir reikna ekki með að heimilin muni lenda í miklum vandræðum

Svo lengi sem þeir lán­tak­endur sem eru með fasta óverð­tryggða vexti á íbúða­lánum sínum, og ráða illa við miklar hækk­anir á mán­að­ar­legri greiðslu­byrði sinni, færi sig í stórum stíl yfir í verð­tryggð lán þá reikna stóru bank­arnir ekki með að þurfa grípa til ann­arra aðgerða en þeir hafa kynnt nú þegar nema fyrir lít­inn hóp. Lands­bank­inn er með rúm­lega helm­ing útistand­andi óverð­tryggðra lána á föstum vöxtum.

Í fjár­festa­kynn­ingu Arion banka vegna upp­gjörs þriðja árs­fjórð­ungs 2023 kemur fram að bank­inn hafi látið fram­kvæma álags­próf á þeim íbúða­lánum sem bank­inn hefur veitt og eru með fasta óverð­tryggða vexti. Nið­ur­staða þess var að um þriðj­ungur lán­tak­enda myndu mögu­lega þurfa að færa sig yfir í lána­form sem fylgdi lægri greiðslu­byrði þegar fast­vaxta­tíma­bili þeirra lyki. Það þýðir þá til­færsla í verð­tryggð lán.

Í álags­próf­inu var gengið út frá því að breyti­legir vextir á óverð­tryggðum lánum muni ná hámarki í um 13 pró­sentum á næsta ári og að þeir yrðu áfram háir inn á árið 2025. Til að setja þá hækkun sem fólkið sem stendur frammi fyrir því að fastir vextir fari að losna á von á þá eru vegnir fastir vextir þeirra sem eru með óverð­tryggð lán í banka sem losna á seinni hluta næsta árs um 4,5 pró­sent. Óverð­tryggðu vext­irnir sem þeim munu standa til boða verða næstum þre­faldir þeir …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Búast má við að Bankar ríghaldi í greiðandi húsnæðis skuldara og hafi ekki stórar áhyggjur því, ef eignin er veðsett fyrir skuldinni, þá mun verðmæti veðsettrar eignar vera mun verðmætari fyrir lánveitandann, þökk sé Stjórnvöldum, sem ………
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár