ÍL-sjóður „eitt brýnasta viðfangsefnið í ríkisfjármálum næstu misseri“

Enn ein til­raunin til að leysa þá stöðu sem er uppi varð­andi ÍL-sjóð stendur nú yfir með fram­lagn­ingu nýrra frum­varps­draga. Að óbreyttu munu um 200 millj­arðar króna hið minnsta á núvirði falla á kom­andi kyn­slóðir vegna máls­ins, sem á rætur sínar að rekja í póli­tískum ákvörð­unum þeirra sem stýrðu land­inu árið 2004. Sá kostn­aður er meiri en rík­is­á­byrgð vegna Icesave-samn­ing­anna hefði kostað rík­is­sjóð.

ÍL-sjóður „eitt brýnasta viðfangsefnið í ríkisfjármálum næstu misseri“
Eitt stærsta úrlausn­ar­efnið Það fellur í skaut Þórdísar Kol­brúnar R. Gylfa­dóttur, nýs fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, að reyna að finna lausn á þeirri flóknu stöðu sem uppi er í ÍL-sjóðs­mál­inu. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur lagt fram drög að frum­varpi sem, á almennan hátt, á að inn­leiða í lög reglur um hvernig megi ljúka megi til­vist til­tek­inna ógjald­færra opin­berra aðila með slitum sem um margt svipar til gjald­þrota­skipta. Þótt umræddar reglur eigi að vera almennar þá er ljóst að kveikjan að gerð frum­varps­ins er bara ein: fjár­hags­vandi ÍL-sjóðs. 

Sá vandi, sem gæti skilað rík­is­sjóði allt að 450 millj­arða króna tapi árið 2044 (200 millj­arðar króna á núvirði) verði ekk­ert að gert, á rætur sínar að rekja til póli­tískra ákvarð­ana sem teknar voru árið 2004. 

Til að setja þessar tölur í sam­hengi má nefna að sam­kvæmt útreikn­ingum Hersis Sig­ur­geirs­sonar, pró­fess­ors í fjár­málum við Háskóla Íslands, á hvað Icesave-samn­ing­arnir hefðu kostað rík­is­sjóð þá reikn­aði hann sig niður á að kostn­aður skatt­greið­enda vegna Icesave I og II hefði orðið 140 millj­arðar króna á verð­lagi árs­ins 2016, eða um 190 millj­arðar króna á …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Þetta væri auðvitað ekkert annað en eignaupptaka.

    Það er augljóst að Sjálfstæðisflokkurinn stendur á bak við þetta. Í stað þess að hækka skatta á stóreignamenn og fyrirtæki eiga lífeyrisþegar framtíðarinnar, þeas komandi kynslóðir, að taka skellinn. Stóreignamenn og fyrirtæki eru hins vegar ekki komandi kynslóðir. Ef þetta sleppur gegnum íslenskt dómskerfi mun Mannréttindadómstóll Evrópu hafna slíkri eignaupptöku.

    Ef lánskjörum yrði breytt með þessum hætti eftir á er ljóst að lánskjör ríkisins munu versna mikið.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár