Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn vann mik­inn kosn­inga­sigur í síð­ustu kosn­ingum og fékk 17,3 pró­sent atkvæða. Þar vakti mikla athygli að Ásmundur Einar Daðason, sem færði sig um kjör­dæmi og sést hér á kosn­inga­vöku flokks­ins 2021, náði að krækja í 12,3 pró­sent atkvæða í Reykja­vík norður, þar sem flokk­ur­inn hefur verið veikur um langt skeið. Um skamm­góðan vermi virð­ist að ræða. Fylgið þar nú nær ekki að vera fjórð­ungur af því sem var. Mynd: Bára Huld Beck

Ásmundur Einar mælist ekki inni á þingi samkvæmt könnunum

Sam­fylk­ingin mælist stærsti flokkur lands­ins í öllum kjör­dæmum lands­ins nema Kraganum. Nokkrir ráð­herrar yrðu tæpir á að falla af þingi ef kosið yrði í dag og einn myndi ekki ná inn. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Viðreisn mæl­ast nú nán­ast jafn stór í öðru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu, þar sem bæði Sam­fylk­ingin og Píratar mæl­ast stærri en báðir flokk­arnir.

Ásmundur Einar Daðason mennta- og barna­mála­ráð­herra myndi ekki ná inn sem kjör­dæma­kjör­inn þing­maður ef kosið yrði í dag og nið­ur­stöður þeirra kosn­inga yrðu í sam­ræmi við fylgi flokka sam­kvæmt könn­unum Maskínu. Með­al­tals­fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins í kjör­dæmi Ásmundar, Reykja­vík norður, mæld­ist ein­ungis þrjú pró­sent á þriðja árs­fjórð­ungi árs­ins 2023. Flokk­ur­inn fékk 12,3 pró­sent atkvæða þar í síð­ustu kosn­ingum, sem fóru fram fyrir rúmum tveimur árum. 

Heim­ildin fékk Maskínu til að taka saman fylgi stjórn­mála­flokka eftir kjör­dæmum. Til að fá mark­tæka nið­ur­stöðu voru teknar saman allar kann­anir sem gerðar voru í hverjum árs­fjórð­ungi fyrir sig. 

Aðrir ráð­herrar myndu halda sér inni á þingi miðað við núver­andi punkt­stöðu sam­kvæmt sam­an­tekt­inni, þó nokkrir standi tæpt. Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins í hinu Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu, þar sem Lilja D. Alfreðs­dóttir, vara­for­maður flokks­ins, er odd­viti, mælist til að mynda rétt rúm­lega sex pró­sent. 

Samfylkingin stærst í fimm kjördæmum

Sam­fylk­ingin hefur verið á miklu flugi í fylgiskönn­unum und­an­farið rúmt ár og mælst …

Kjósa
70
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Einar Már Gunnarsson skrifaði
    Eigum við ekki bara að kjósa núna og losa okkur við spillinguna strags.
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár