Samfylkingin ætlar ekki að enda eins og Vinstri græn eða Framsókn

Kristrún Frosta­dóttir segir Sam­fylk­ing­una hafa brot­ist út úr berg­máls­hell­inum og sé nú breyttur flokkur. Í ræðu í dag sagð­ist hún ekki ætla að skamm­ast sín fyrir að tala um skatta og vel­ferð og teygði sig bæði til atvinnu­lífs­ins og lands­byggð­ar­innar, meðal ann­ars með því að vitna í orð fyrr­ver­andi for­ystu­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins. „Það þarf að end­ur­heimta efna­hags­legan stöð­ug­leika. Ef rík­is­stjórnin getur ekki rifið sig í gang þá ætti hún að sjá sóma sinn í því að hætta og boða til kosn­inga.“

Samfylkingin ætlar ekki að enda eins og Vinstri græn eða Framsókn
For­mað­ur­inn Kristrún Frosta­dóttir segir Sam­fylk­ing­una ekki ætla að „elta skoð­ana­kann­anir eða þá sem hafa hæst á sam­fé­lags­miðlum“ né gera sömu mis­tökin og aðrir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar, sem hafi mælst vel á miðju kjör­tíma­bili. Mynd: Sindri Swan

„Sama hvað and­stæð­ingar okkar í stjórn­málum segja, þá munum við ekki skamm­ast okkar fyrir að tala um skatta og vel­ferð. Við ætlum ekki að enda eins og Vinstri græn eða Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem hafa stillt sér upp sem vel­ferð­ar­flokkum og lofað öllu fögru án þess að finna fjár­magn til að standa við stóru orðin. Það er póli­tík sem er mér ekki að skapi.“

Þetta er meðal þess sem Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði í ræðu sinni á flokks­stjórn­ar­fundi sem hald­inn var á Akureyri í dag.

Í ræð­unni lagði Kristrún mikla áherslu á að fjár­magna þyrfti aukna upp­bygg­ingu lyk­il­vel­ferð­ar­kerfa og inn­viða með auk­inni skatt­lagn­ingu þar sem við á, en líka með auk­inni og við­hald­inni verð­mæta­sköpun. „Sam­fylk­ingin vill að arður af sam­eig­in­legum nátt­úru­auð­lindum nýt­ist í þágu nær­sam­fé­lags og þjóðar. Ég ræddi þessi mál við for­sæt­is­ráð­herra Noregs á fundi okkar síð­ast­liðið vor og það var fróð­legt að heyra hann segja frá stoltri hefð Norð­manna þegar kemur að nýt­ingu nátt­úru­auð­linda og inn­heimtu auð­linda­gjalda, sem er skipt á milli sveit­ar­fé­laga og rík­is­sjóðs. En það er ekki þannig, og verður aldrei, að gjald­taka af ein­hverri einni atvinnu­grein eða tveimur geti staðið undir end­ur­reisn vel­ferð­ar­kerf­is­ins á Ísland. Það væri ábyrgð­ar­laust að tala með þeim hætti og þess vegna þurfum við að vera hrein­skilin við fólkið í land­inu í umræðum um skatta og vel­ferð. Sós­í­alde­mókrasía snýst um sam­trygg­ingu og við þurfum að rísa undir þeim vænt­ingum sem fólkið í land­inu gerir til okkar.“

 Hún sagði nauð­syn­legt að setja ekki fram ósam­rým­an­leg mark­mið. „Við getum ekki staðið við stefnu okkar um tugi millj­arða til heil­brigðis- og öldr­un­ar­mála ef við ætlum á sama tíma að taka undir ýtr­ustu kröfur í öllu mögu­legu, jafn­vel um að loka hér verk­smiðjum eða heilum atvinnu­greinum sem skapa okkur tekjur til vel­ferðar. Það er hvorki trú­verð­ugt né skyn­sam­legt.“

Verkalýður og atvinnulíf

Kristrún eyddi umtals­verðum tíma í að ræða um, og við, atvinnu­lífið í land­inu á hátt sem for­menn jafn­að­ar­manna á Íslandi hafa ekki gert í lengri tíma. Hún lagði líka tölu­verða áherslu á mál­efni sem eru ofar­lega á baugi á lands­byggð­inni. 

Hluti þess sam­tals fór fram í gegnum kynn­ingu á skipun stýri­hóps sem á að móta það sem Kristrún kall­aði „Vaxt­ar­plan fyrir Ísland“, en hópnum er ætlað að móta stefnu Sam­fylk­ing­ar­innar í atvinnu og sam­göngum. 

Athygli vekur að í hópnum, sem leiddur er af rit­ara flokks­ins, Önnu Láru Jóns­dóttur bæj­ar­stjóra Ísa­fjarðar, eru bæði for­ystu­maður úr verka­lýðs­hreyf­ing­unni, Kristján Þórður 

Snæ­bjarn­ar­son, for­seti Raf­iðn­að­ar­sam­bands Íslands og fyrrum for­seti Alþýðu­sam­bands­ins, og fyrr­ver­andi vara­for­maður í Samtökum atvinnu­lífs­ins og í Við­skipta­ráði, Margrét Krist­manns­dóttir. Margrét var líka vara­for­maður stjórnar Banka­sýslu rík­is­ins þar til fyrir skemmstu. Fjórði ein­stak­ling­ur­inn í stýri­hópnum er Stefán Þór Eysteins­son, mat­væla­fræð­ingur og for­maður bæj­ar­ráðs Fjarða­byggðar. 

„Við sögðum að við myndum ekki elta skoð­ana­kann­anir eða þá sem hafa hæst á sam­fé­lags­miðlum.“

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar sagði í ræð­unni að atvinna og sam­göngur væru teknar saman vegna þess að sam­spilið þar á milli væri mik­il­vægt, bæði í höf­uð­borg­inni og í dreifð­ari byggðum. „Við þurfum að rjúfa kyrr­stöð­una sem birt­ist meðal ann­ars í algjöru jarð­ganga­stoppi og fram­kvæmda­fælni hjá núver­andi rík­is­stjórn þegar kemur að Borg­ar­línu og öðrum sam­göngu­bótum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Og ég tala nú ekki um stefnu­leysið í orku­málum og kyrr­stöðu í rétt­látum umskiptum á vakt sitj­andi rík­is­stjórnar.“ 

Ekki tíminn til að ofmetnast

Frá því að Kristrún tók við for­mennsku í Sam­fylk­ing­unni hafa áherslur flokks­ins færst í hefð­bundn­ari jafn­að­ar­manna­far­veg og fók­us­inn settur á að Sam­fylk­ingin verði skýr flokkur launa­fólks í land­inu. Svo­kall­aður „Bread and butter“ flokkur í stað þess að stefnu hans sé smurt vítt en þunnt á mörg svið. Þetta hefur skilað því að fylgi flokks­ins hefur rokið upp, farið úr tæpum 14 pró­sentum þegar Kristrún var kosin í 30 pró­sent í síð­ustu fylgiskönnun Gallup. Sam­fylk­ingin hefur nú mælst stærsti flokkur lands­ins allt þetta ár. Það þýðir að hún mælist með umtals­vert meira fylgi en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, en fyrir árið 2023 hafði Sam­fylk­ingin ekki mælst stærri en höf­uð­and­stæð­ingur hennar síðan í maí 2009.

Kristrún sagði í ræðu sinni að búið væri að breyta Sam­fylk­ing­unni. „Við höfum náð aftur virk­ari teng­ingu við venju­legt fólk, hinn almenna launa­mann. Við höfum brot­ist út úr berg­máls­hell­inum. [...]Við sögðum að við myndum ekki elta skoð­ana­kann­anir eða þá sem hafa hæst á sam­fé­lags­miðlum. Og allt hefur þetta staðið eins og stafur á bók. Stað­reyndin er þessi: Það gengur allt sam­kvæmt áætlun hjá Sam­fylk­ing­unni. Og við ætlum að halda áfram á sömu braut.“

Nú væri þó ekki rétti tím­inn til að ofmetn­ast eða halla sér aftur vegna góðs gengis í skoð­ana­könn­unum. „Við tökum engu sem gefnu. Og við ætlum ekki að gera sömu mis­tökin og aðrir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar, sem hafa mælst vel á miðju kjör­tíma­bili en svo mis­tek­ist að ávinna sér traust þjóð­ar­innar í raun þegar á hólm­inn var komið.“

Verðmætasköpun ekki einkaframtak fjármagnseigandans

Einna mesta athygli í ræð­unni vakti sá tónn sem Kristrún sendi inn í atvinnu­lífið. Vin­sam­legur tónn um að Sam­fylk­ingin væri flokkur þess. Vaxtaplan hennar muni verða metn­að­ar­full áætlun um að „leysa úr læð­ingi krafta hvers ein­asta Íslend­ings, í hverjum ein­asta lands­hluta, í þágu fjöld­ans en ekki fárra útval­inna; þar sem fram­lag allra er virt að verð­leikum; þar sem við leyfum okkur að vera stór­huga og sækja fram en gerum það af ábyrgð og virð­ingu fyrir atvinnu fólks og lífs­við­ur­væri þess. Við munum skapa skýran ramma fyrir vöxt og verð­mæta­sköpun á Íslandi.“

Hún sagði að jafn­að­ar­mennska sner­ist um fleira en skipt­ingu verð­mæta. Sam­fylk­ingin vilji líka skapa verð­mæti og að hún skildi að verð­mæta­sköpun væri sam­vinnu­verk­efni; launa­fólks, atvinnu­rek­enda og hins opin­bera. „Í þessum skiln­ingi krist­all­ast ágrein­ing­ur­inn við and­stæð­inga okkar í stjórn­málum, sem halda því fram að starfs­menn hins opin­bera skapi engin verð­mæti og að sterk íslensk verka­lýðs­hreyf­ing sé óþörf; því að verð­mæta­sköpun sé í raun einka­fram­tak fjár­magns­eig­and­ans og for­stjór­ans. Það er ekki réttur skiln­ingur heldur bein­línis skað­legur mis­skiln­ingur.“

„við ætlum ekki að gera sömu mis­tökin og aðrir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar, sem hafa mælst vel á miðju kjör­tíma­bili en svo mis­tek­ist að ávinna sér traust þjóð­ar­innar.“

Sam­fylk­ingin skilji sam­hengið milli vinnu og vel­ferðar. „Við skiljum að ábyrg hag­stjórn kallar á virka aðkomu hins opin­bera. Og við skiljum að það er ekk­ert til sem heitir frjáls mark­aður í raun, öll verð­mæta­sköpun í einka­geir­anum á sér stað í skjóli ramma og reglu­verks, laga og skipu­lags, sem stofn­anir hins opin­bera halda utan um. Það er þekkt fyr­ir­brigði að sterkar stofn­anir eru for­senda öfl­ugs einka­fram­taks, þar sem eign­ar­réttur er virtur, leik­reglur eru skýrar og fólk getur treyst því að samn­ingar gangi eftir. Öfl­ug­ustu sam­fé­lög heims, þar sem verð­mæta­sköpun og vel­ferð er hvað mest, eru sam­fé­lög þar sem skiln­ingur er á mik­il­vægu sam­spili þess­arar þrenn­ingar; launa­fólks, atvinnu­rek­enda og hins opin­bera. Hið opin­bera á ekki að stjórna öllu, né að sleppa öllu lausu og vona það besta. Hlutverk þess er að skapa skýran ramma og taka ábyrgð á upp­bygg­ingu og þróun sam­fé­lags­ins.“

Vitnaði í Gunnar

Annar reglu­legur tónn í tali Kristrúnar und­an­farið ár er að tala um Sam­fylk­ing­una sem nýja stöð­ug­leik­ann í íslenskum stjórn­málum, en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur málað sig upp í þeim litum und­an­farna ára­tugi. 

Hún bætti enn í í þessum efnum í ræð­unni í dag og vís­aði þar meðal ann­ars í orð fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og vara­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Gunnars Thorodd­sen. „Þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er á und­an­haldi sem breið­fylk­ing þá getur Sam­fylk­ingin gert þessi orð að sínum: Frelsi — með ábyrgð. Mér finnst þetta gamla slag­orð Gunnars Thorodd­sen fanga nokkuð vel sýn okkar sós­í­alde­mókrata á upp­bygg­ingu í atvinnu­lífi, og um leið aðgreina okkur með skýrum hætti frá ofurein­stak­lings­hyggju þeirra sem vilja setja mark­aðslög­mál ofar öllu öðru. Frelsi með ábyrgð, gagn­vart sam­fé­lagi og nátt­úru, og ábyrgð okkar sem njótum gæfu gagn­vart öðrum sem lífið leikur harðar.“

Stefna Bjarna komin í þrot

Undir lok ræð­unnar ræddi Kristrún stöð­una í stjórn­mál­unum í dag, en stjórn­ar­kreppa mynd­að­ist í byrjun viku þegar Bjarni Bene­dikts­son sagði af sér sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra vegna álits umboðs­manns Alþingis þess efnis að Bjarni hefði verið van­hæfur til að taka ákvörðun um að selja félagi föður síns hlut í Íslands­banka í fyrra­vor. 

FormennBlaða­manna­fundur rík­is­stjórn­ar­innar í morgun fjall­aði um ákvörðun stjórn­ar­flokk­anna um að halda áfram sam­starfi sínu út kjör­tíma­bilið og stóla­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar og Þórdísar Kol­brúnar R. Gylfa­dóttur.

Kristrún sagð­ist hafa lítið að segja um „upp­hlaupin og ringul­reið­ina sem við sjáum hjá rík­is­stjórn­inni þessi miss­erin“. Það ríki þó óstjórn í efna­hags­málum og ljóst sé að Bjarni skili ekki sér­lega góðu búi. Það sé átta pró­sent verð­bólga og stýri­vextir standa í 9,25 pró­sentum. „Efna­hags­stefna frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra var komin í þrot. Burtséð frá banka­söl­unni liggur fyrir að þessi stefna var komin á enda­stöð, þrátt fyrir að for­sæt­is­ráð­herra geri allt sem í valdi hennar stendur til að verja arf­leifð Sjálf­stæð­is­manna í efna­hags­málum og arf­leifð þeirra við einka­væð­ingu banka, sem hefur hlotið áfell­is­dóm hjá Rík­is­end­ur­skoðun, Seðla­banka og nú loks Umboðs­manni Alþingis.

 Mikil orka hefur farið í að ræða um per­sónu frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra í vik­unni, og því meðal ann­ars velt upp að for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi mögu­lega styrkt stöðu sína, þegar hann sagði af sér einu valda­mesta emb­ætti lands­ins, sem hann hefur gegnt í ára­tug. Hvað get ég sagt? Ég held satt best að segja að slíkar bolla­legg­ingar séu víðs fjarri veru­leika venju­legs fólks og skipti litlu máli. Þetta snýst ekki um per­sónur, heldur verk­efnin. Það sem skiptir máli er hvaða áhrif þetta hefur á stjórn efna­hags­mála í land­inu: Verður breytt um stefnu? Fjár­lögin verða að breyt­ast. Og hvað þýðir þetta fyrir kjara­samn­ing­ana sem eru framundan? Þetta eru spurn­ingar sem brenna á fólki og sem við í Sam­fylk­ing­unni munum spyrja á næstu dögum og vikum.“

Samfylkingin tilbúin þegar stjórnin er búin

Þegar þjóðin sjái óreiðu hjá rík­is­stjórn­inni þá sé hún að upp­lifa festu í Sam­fylk­ing­unni, að mati Kristrúnar. „Það gengur allt sam­kvæmt áætlun hjá okkur. Höldum bara áfram á sömu braut. Svo þegar rík­is­stjórnin verður loks­ins búin, þá verðum við í Sam­fylk­ing­unni til­búin; fáum við til þess traust og umboð í kosn­ingum.“

Sýn Sam­fylk­ing­ar­innar til að takast á við þær aðstæður sem séu uppi í efna­hags­líf­inu sé skýr. Flokk­ur­inn hafi kallað eftir kjara­pakka og kynnt slíkan í tengslum við fjár­lög í fyrra. „Allt sem við vöruðum við þá hefur því miður orðið að veru­leika. En við köllum ennþá eftir þessum sömu aðgerðum. Hug­myndin með kjara­pakka Sam­fylk­ing­ar­innar er að taka á þensl­unni þar sem þenslan er í raun og veru, með sér­tækum aðhalds­að­gerðum á tekju­hlið rík­is­sjóðs. Og verja heim­il­is­bók­haldið þar sem þörfin er mest með sér­tækum aðgerðum á borð við vaxta- og barna­bætur, tíma­bundna leigu­bremsu að danskri fyr­ir­mynd og ívilnun til upp­bygg­ingar á almennum íbúðum. Þannig viljum við stuðla að ró á vinnu­mark­aði og vinna gegn verð­bólgu. En það er algjört lyk­il­at­riði til að árangur náist að svona kjara­pakki sé full­fjár­magn­aður og meira en það.“

Stjórnin megi taka kjarapakkann og heiðurinn

Rík­is­stjórnin hafi hins vegar valið að fara aðra leið. Bíða átekta, benda á Seðla­bank­ann og kalla þannig hærri vexti yfir heim­ilin og fyr­ir­tækin í land­inu. „Þess vegna erum við á þeim stað sem við erum á í dag. Því að þegar rík­is­stjórnin gerir minna þá þarf Seðla­bank­inn að gera meira. Vext­irnir hækka flatt yfir öll heim­ili og fyr­ir­tæki. Og ég efast stór­lega um þjóðin vilji sífellt hærri vexti frekar en sér­tækar aðgerðir á tekju­hlið, kjara­pakka eins og Sam­fylk­ingin hefur lagt til. Nú hefur rík­is­stjórnin bætt gráu ofan á svart með við­bótarað­halds­kröfu sem er öll á útgjalda­hlið, og við munum nú hvar aðhaldið lenti síð­asta vetur. Þegar krónu­tölu­gjöldin voru skrúfuð upp í topp.“

Kristrún sagði leið rík­is­stjórn­ar­innar skamm­sýna. Án sér­tækra aðgerða til að verja heim­il­is­bók­haldið haldi víta­hringur verð­bólgu og hárra vaxta áfram. „Kostn­að­ar­krísan knýr þá kröfur um almennar launa­hækk­anir, sem lenda svo í fangi fyr­ir­tækja, sveit­ar­fé­laga og auð­vitað rík­is­ins. Með miklu meiri til­kostn­aði en hlyt­ist af aðgerðum af hálfu rík­is­ins. Þau treysta sér ekki til að rjúfa þennan víta­hring því þau eru föst í póli­tískri kreddu um að fyr­ir­sjá­an­leiki í sköttum sé eini fyr­ir­sjá­an­leik­inn sem skiptir máli, aldrei megi eiga við tekju­hlið rík­is­ins. Í stað­inn skapa þau ófyr­ir­sjá­an­leika í vaxta­stigi, sem bitnar á heim­ilum og fyr­ir­tækjum með flötum hætti, og fyr­ir­tækin í land­inu taka á sig vel­ferð­ar­hlut­verkið, að vernda kaup­mátt heim­il­anna.“

Íslandi muni aldrei losna úr þessum víta­hring á meðan að það við­horf sé ráð­andi innan rík­is­stjórn­ar­innar að ríkið hafi nær engu hlut­verki að gegna í efna­hags­legum stöð­ug­leika, líkt og Bjarni Bene­dikts­son, frá­far­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hafi stillt því upp fyrr í haust. „Mín skila­boð til rík­is­stjórn­ar­innar og nýs fjár­mála­ráð­herra eru þessi: Kjara­pakki Sam­fylk­ing­ar­innar er besta leiðin til að milda þetta högg sem nú hlýst af verð­bólg­unni og koma í veg fyrir að ástandið vindi óþarf­lega upp á sig. Takið hann bara. Þið megið eiga þessar til­lögur og taka heið­ur­inn. Okkur er sama — við viljum bara sjá verð­bólg­una og vext­ina fara niður.

Það þarf að end­ur­heimta efna­hags­legan stöð­ug­leika. Ef rík­is­stjórnin getur ekki rifið sig í gang þá ætti hún að sjá sóma sinn í því að hætta og boða til kosn­inga.“

Kjósa
59
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Öflug ræða. Ég sem innvígður samfylkingarmaður myndi kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef hann tæki við kjarapakka Samfylkingarinnar og framkvæmdi skynsamlega stefnu. En því er ekki að heilsa. Við verðum að komast upp úr holum einkahagsmuna og hugsa um samfélagið allt.
    2
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Það verða allir flokkar geislavirkir (til lengri eða skemri tíma), sem sitja í stjórn með stærstu skipulögðu glæpasamtökum Íslands, sjálfstæðisflokknum.
    Og þeirra bíður afhroð í kosningum eftir að hafa stutt þessi glæpasamtök.
    4
    • Hlynur Jörundsson skrifaði
      Samfylkingin hefur sinn dag líkt og sjallarnir mínir sína daga. Píratar eru bullandi meðvirkir enda flokkar sem hafa ekki innbyggð hreinsikerfi. Fullorðið fólk sem segir buhu ég var avegaleitt fórnarlamb. Aumkverðar afsakanir. Kjósendur fá alltaf bara loforðin en ekki tryggingar fyrir loforðum. Má bjóða ykkur dönsk strá ?
      -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár