Sund­laugar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu Verð­leggja staka stund­ferð ólíkt eftir sveit­ar­fé­lögum. Mynd: Shutterstock

Hvað kostar að fara í sund?

Stakur miði í sund kostar mis­mikið í hverju sveit­ar­fé­lagi en þau hafa laga­legan rétt til að ákveða verðið sjálf. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er dýr­ast að fara í sund­laugar Reykja­vík­ur­borgar en ódýr­ast í Mos­fellsbæ og Garðabæ. Heim­ildin spurði gesti og gang­andi um sund­venjur þeirra og afstöðu til gjald­skrár sund­laug­anna.

Sund á stóran þátt í lífi margra Íslend­inga og nær til allra ald­urs­hópa. Renni­brautir, froska­lappir og fljót­andi upp­blásnir krókó­dílar geta skapað heilan heim ævin­týra fyrir börn sem svamla um í grynnstu laugum lands­ins.

Á meðan ung­lingar sjá sund­laug hverf­is­ins sem til­val­inn stað fyrir kvöld­stundir með vinum án trufl­ana frá for­vitnum for­eldrum nýtir eldra fólk laug­arnar gjarnan til að stunda hreyf­ingu á morgn­ana og fá félags­lega útrás.

En hvað kostar eig­in­lega að fara í sund? Það fer eftir því hvert þú ferð, hver þú ert og í hvaða sveit­ar­fé­lagi sund­laugin sem þú hefur hug á að fara í er.

Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fá flest börn frítt í sund, nema í Reykja­vík borga 16-17 ára börn 195 krónur fyrir mið­ann. Eldri borg­arar og öryrkjar fá ókeypis aðgang. 

Fer eftir sveitarfélögum

Ein­stak­lingar á aldr­inum 18-67 ára sem sækja sund­laugar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu greiða yfir­leitt í kringum 1.000 krónur fyrir sund­miða. Verð á stökum sund­miða í sund­laugar Reykja­vík­ur­borgar er 1.210 krónur, miðað við inn­leið­ingu gjald­skrár þann 1. októ­ber 2023. 

Samkvæmt verð­skrá Kópa­vogs­bæjar kostar mið­inn 1.130 krónur og í Hafn­ar­fjarð­arbæ og á Sel­tjarn­ar­nesi fæst aðgangur á 1.100 krónur. Mos­fells­bær og Garðabær bjóða lægsta verðið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fyrir stakt skipti, sléttar 1.000 krónur. 

Í skrif­legu svari Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar um hvort sveit­ar­fé­lög eigi að fá að ákveða gjald fyrir sund­ferðir sjálf segir: „Ákvörðun um gjald­töku á sund­stöðum er algjör­lega í höndum hvers og eins sveit­ar­fé­lags sem er eðli­legt út frá sjálf­stjórn­ar­rétti þeirra.“

Þrír við­mæl­endur Heim­ild­ar­innar greindu frá sund­venjum sínum og svör­uðu því hvað þeim finnst að stakur aðgangur í sund­laug ætti að kosta. 

Kolbrún Jóhanns­dóttirBýr í Mos­fellsbæ og fer því helst í sund þar.

Kolbrún Jóhanns­dóttir býr í Mos­fellsbæ og fer reglu­lega í sund þar. Hún er spurð að því hvað sé sann­gjarnt verð fyrir sund­ferð þegar hún er á göngu um versl­un­ar­mið­stöð. „Mér finnst að það eigi að vera í lág­marki þar sem þetta er heilsu­efl­andi,“ svarar Kolbrún og bætir við að verðið mætti vera ódýr­ara en það er í dag, helst ekki meira en 500 krónur. 

„Mér finnst að það eigi að vera í lág­marki þar sem þetta er heilsu­efl­andi“
Kolbrún Jóhanns­dóttir

Fyrir utan Sundhöll Reykja­víkur síðla mánu­dags í byrjun októ­ber stendur Ásta Lilja Magn­ús­dóttir og leigir sér Hopp-hjól. Hún fer í sund nokkrum sinnum í viku og eru tvær laugar í miklu upp­á­haldi. „Þessi laug hér, Sundhöll Reykja­víkur, en svo fer ég líka stundum í Vest­ur­bæj­ar­laug­ina.“

Báðar laug­arnar eru nálægar heim­ili Ástu Lilju en hún tengir þær jafn­framt við barn­æsk­una. „Þetta eru laugar sem ég hef farið í frá því ég var krakki.“

Aðspurð hvað henni finn­ist sann­gjarnt að borga fyrir sund­ferð segir Ásta Lilja: „Mér finnst alveg sann­gjarnt að borga frekar hátt gjald fyrir eina staka ferð, yfir 1.000 krónur að minnsta kosti. En hins vegar finnst mér að verð á árskortum og annað megi vera bara ... ekk­ert það dýrt. Árskort alveg 20–30 þús­und, eitt­hvað svo­leiðis. Það er dýr­ara minnir mig.“ Hún bætir við að sér þyki sann­gjarnt að aldr­aðir og öryrkjar fái ókeypis í sund. 

Ásta Lilja Magn­ús­dóttirTengir sínar upp­á­halds sund­laugar við barn­æsk­una.

Ástu Lilju minnir rétt hvað varðar verð á árskortum, en bæði sund­laugar í Reykja­vík­ur­borg og Garðabæ selja árskort í sund á yfir 40.000 krónur stykkið. Í Garðabæ fylgir þó aðgangur að þrek­sal Ásgarðs með.

Fyrir þau sem sækja sund á Sel­tjarn­ar­nes­inu er gjaldið fyrir árskort 38.300 krónur en í Mos­fellsbæ kostar árskortið 35.000 krónur. Hafn­ar­fjarð­ar­bær og Kópa­vogs­bær selja svo sín kort á rétt rúmar 32.000 krónur.

Kópa­vogs­bú­inn Guð­mundur Ingi er stopp­aður á rölt­inu. Hann fer stundum í sund og þá oft­ast í Sala­laug­ina í Kópavogi því hún er í nágrenn­inu. Líkt og hinir við­mæl­endur svarar hann því hvað sé sann­gjarnt að borga fyrir eina sund­ferð. „Þar sem ég þarf ekki að borga neitt, þá er það bara mjög sann­gjarnt. Ég fæ frítt í sund. Ég er orð­inn svo gam­all,“ segir Guð­mundur Ingi ánægður og brosir breitt. 

„Þar sem ég þarf ekki að borga neitt, þá er það bara mjög sann­gjarnt“
Guð­mundur Ingi
Guð­mund­urIngiNýtur þess að fara í sund í Kópavogi.

Aðgangur í gegnum líkamsrækt

Hjá fjöl­menn­ustu lík­ams­rækt­ar­stöðvum lands­ins fylgir iðu­lega aðgangur að völdum sund­laugum með áskrift­ar­kortum.

Til að mynda kostar mán­að­ar­kort með ótíma­bundnum samn­ing 9.430 krónur hjá World Class. Korthafi fær aðgang að átta sund­laugum, þar af fimm sem eru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hjá Reebok Fitness kostar mán­að­ar­á­skrift 8.650 krónur og veitir inn­göngu hjá Ásvalla­laug, Salalaug og Kópa­vogs­laug. 

Lík­ams­rækt­ar­kortin kosta þó meira en dýr­ustu 10 skipta kortin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. 

Ef ein­stak­lingur í Kópavogi, þar sem 10 skipta kortin eru dýr­ust, kaupir sér átta staka sund­miða kostar það 9.040 krónur. Það er meira en mán­að­ar­að­gangur í Reebok fit­ness þar sem aðgangur að tveimur laugum í Kópavogi fylgir með. Það getur því borgað sig fyrir fólk sem leggur stund á lík­ams­rækt og sækir sund­laugar að nýta slíkt kort í stað þess að borga auka­lega fyrir sund. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SE
    Sverrir Einarsson skrifaði
    Fyrirsögnin ætti að vera "Hvað kostar að fara í sund á Höfuðborgarsvæðinu"
    Það eru nefnilega hægt að fara í sund fyrir utan höfuðborgarsvæðið þó greinarhöfundur geri sér ekki greín fyrir því við vinnslu greinarinnar
    0
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Ég las en er raunverulega engu nær ? Ég fer í sund reglulega í Breiðholtslaug, og borga ekkert, þar sem ég er búinn að borga í gegnum áratugina. Nýt þess að vera eldriborgari.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár