Af hverju elskum við einhvern sem kemur illa fram við okkur?

Margrét Vil­hjálms­dóttir er þessa dag­ana á fjölum Þjóð­leik­húss­ins eftir að hafa dvalið erlendis í mörg ár. Við að kynn­ast skóla­kerf­inu í Berlín upp­götv­aði hún hversu djúpt trá­mað eftir seinni heims­styrj­öld­ina og komm­ún­ískt ein­ræði liggur enn þá í þjóð­inni. „Þau voru öskr­andi á börnin,“ segir hún í við­tali um hörku og mýkt, varnir feðra­veld­is­ins, skrímsla­væð­ingu kvenna, jafnt sem sterkar kven­fyr­ir­myndir í lífi hennar; ofbeldi og hættu­leg öfl.

Af hverju elskum við einhvern sem kemur illa fram við okkur?
Loksins snúin aftur Þessa dag­ana má sjá Margréti í Þjóð­leik­hús­inu skína í hlut­verki Fedru í verk­inu ást Fedru eftir breska tíma­móta­skáldið Söruh Kane. Mynd: Heiða Helgadóttir

Margrét mætir beint í við­tal af sam­stöðu­fundi með flótta­fólki frá Venes­ú­ela með þeim orðum að það sem valdið hafi ástand­inu í Venes­ú­ela séu við­skipta­þving­anir Banda­ríkja­manna á sínum tíma. En fljót­lega berst talið að leik­hús­inu.

Hún er loks­ins snúin aftur á íslenskt leik­svið.

Þessa dag­ana má sjá hana í Þjóð­leik­hús­inu skína í hlut­verki Fedru í verk­inu Ást Fedru eftir breska tíma­móta­skáldið Söruh Kane – sem kennd er við in-yer-face-leik­ritun.

Fedra elskar stjúp­son sinn af þrá­hyggju, hún þráir hann; um leið og segja má að hún sé bundin á klafa svo­kall­aðs feðra­veldis.

„Ef við skoðum bak­grunn leik­verks Söruh Kane, mítalóg­í­una um Fedru; ef við hugsum hana tákn­rænt, þá fram­kvæmir hún stærstu hefnd vest­rænnar sögu,“ segir Margrét. „Ung að árum er hún látin gift­ast Þeseifi; hann drepur systur hennar og hafði lík­lega drepið bróður hennar. Þetta eru Kar­dashi­ans þess tíma. Aldrei er nefnt að kon­ung­arnir …

Kjósa
52
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Thora Bergny skrifaði
    Spriklandi skemmtilegt en líka djúp sárt viðtal.
    1
  • MRG
    Margrét Rún Guðmundsdóttir-Kraus skrifaði
    Ég hef alið 3 börn upp í Þýskalandi og kannast ekki við að öskrað sé á þau í skólum. Það er ekki rétt að alhæfa svona.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár