Mynd: Heiða Helgadóttir

„Einveran öskrar á mann“

Hér á landi er fólk sem glímir við ein­angrun og ein­mana­leika, deyr eitt og liggur látið án þess að and­lát þess upp­götvast. Um tvisvar í mán­uði er fag­fólk kallað á vett­vang slíkra atburða. Fjöl­skylda í hefð­bundnu íbúða­hverfi ótt­að­ist lengi um nágranna sinn og reyndi ítrekað að kalla eftir aðstoð, þar til hann lést. Íbúar í Hátúni 10 þekkja þessar aðstæður, og sam­ein­ast í bar­átt­unni við sáran ein­mana­leik­ann.

Kristján Maríus Jónasson verður 73 ára á næstu dögum, býr einn og er „alltaf ein­mana“. Suma morgna þegar Kristján Maríus vaknar fyllist hann örvænt­ingu gagn­vart deg­inum sem fram undan er, hvað hann eigi að gera við hann og sig sjálfan. Hann býr í einni af þremur blokkum á vegum Brynju leigu­fé­lags, sjálfs­eign­ar­stofn­unar sem á og rekur íbúðir fyrir öryrkja í Hátúni 10, flutti þangað inn fyrir að verða tutt­ugu árum síðan með eig­in­konu sinni, en í dag eru þau skilin. Eftir skiln­að­inn fór að halla undan fæti hjá Krist­jáni Maríusi sem ein­angr­að­ist alltaf meira og meira með árunum. 

Ein­mana­leiki ein­skorð­ast auð­vitað ekki við Kristján Maríus, Hátún 10 eða Ísland. Ein­mana­leika hefur verið lýst sem „far­aldri“ víða um heim og í Bret­landi hefur hann náð slíkum tökum á sam­fé­lag­inu að árið 2018 ákvað Theresa May, þá for­sæt­is­ráð­herra Breta, að skipa sér­stakan „ráð­herra ein­mana­leika“ til að eiga við það sem hún …

Kjósa
44
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HB
    Helena Bragadóttir skrifaði
    Mögnuð og þörf umfjöllun, vel skrifað.
    1
  • Þórey Sigurjónsdóttir skrifaði
    Svo innilega frábær skrif👌áhugi, dýpt og virðing ❤️
    1
  • Pálína Þórarinsdóttir skrifaði
    Mögnuð skrif en svo sorgleg um leið. Takk fyrir að kafa ofan í þetta erfiða samfélagsmein.
    1
  • Ingibjörg Stefánsdóttir skrifaði
    Frábær grein, vel unnin og skrifuð af varfærni og virðingu fyrir þessa viðkvæma efni.
    4
  • Auður Jónsdóttir skrifaði
    Takk fyrir þessa umfjöllun - þörf umræða.
    3
  • Sunna Kristinsdóttir skrifaði
    Mögnuð grein. Takk fyrir að fjalla um þetta
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár